Hraunhamar fasteignasala kynnir: Sérlega fallega og rúmgóða 3ja-4ja herbergja íbúð á 1 hæð (jarðhæð garðmegin) samtals 103.6 með geymslu.
Óvenju rúmgóður sérafnotaréttur fylgir eigninni þ.e. ca 35 fm verönd í suður. Frábær staðsetning í göngufæri við miðbæinn, verslanir, þjónustu ofl. Eignin skiptist m.a. þannig: Góður inngangur,
forstofa með skáp, hol, björt
stofa og borðstofa, fallegt
eldhús með vönduðum innréttingum og tækjum,
borðkrókur (borðkrókur er herbergisaðstaða í dag, en auðvelt að breyta í fyrra horf) útgengt þaðan á skjólgóðar
svalirnar. Gott
þvottaherbergi með innréttingu og skolvask.
Svefnálma: Rúmgott
hjónaherbergi með skáp og útgengt þaðan á stóra
timburveröndina. Rúmgott
barnaherbergi með skáp, rúmgott fallegt
baðherbergi með fínni sturtuaðstöðu, flísar í hólf og gólf,
handklæðaofn og hiti í gólfum.
Flísar á gólfum, hiti í öllum gólfum. Gólfsíður gluggi í stofu, og rennihurðir.
Góð sérgeymsla í sameign auk hefðbundin snyrtileg sameign.
Gott stæði í bílahúsi, vel staðsett í bílakjallaranum.
Þetta er áhugaverð eign á þessum vinsæla stað sem vert er að skoða frekar.
Nánari uppl. gefa Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 903-2233 helgi@hraunhamar.is og
Glódís Helgadóttir lgf s. 659-0510 glodis@hraunhamar.isSkoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 3,800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.