Opið hús:26. jan. kl 17:00-17:30
Skráð 21. jan. 2026

Hallgerðargata 1a

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
42.1 m2
1 Herb.
1 Baðherb.
Verð
54.900.000 kr.
Fermetraverð
1.304.038 kr./m2
Fasteignamat
53.200.000 kr.
Brunabótamat
33.900.000 kr.
Mynd af Hrannar Jónsson
Hrannar Jónsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2023
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2517486
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
Nýtt frá 2023
Raflagnir
Nýtt frá 2023
Frárennslislagnir
Nýtt frá 2023
Gluggar / Gler
Nýtt frá 2023
Þak
Nýtt frá 2023
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Yfirbyggðar
Upphitun
Hitaveita gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:

Mjög stílhreina, fallega og nýlega 42 fm stúdíóíbúð við Hallgerðargötu 1a, íbúð 103.

Um er að ræða bjarta og nútímalega íbúð í fjölbýlishúsi sem byggt var árið 2023.

Íbúðin skiptist í forstofu með góðum fataskáp, alrými með eldhúsi og svefnrými, baðherbergi og yfirbyggðum svölum.

Með íbúðinni fylgir rúmgóð geymsla í kjallara, um 3,7 fm að stærð, hátt til lofts og aðgengi þar að góðum vagna- og hjólageymslum á sameign.

Nánari lýsing:
Eldhúsinnrétting er á einum vegg, sérsmíðuð og búin AEG spanhelluborði, blástursofni og tengi fyrir uppþvottavél.
Svefnrýmið er stúkað af innst í alrýminu og þar eru fataskápar.
Baðherbergið er flísalagt á gólfum og hluta veggja, innrétting með geymslurými og vaski, upphengt salerni ásamt innréttingu með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Gólfefni íbúðarinnar er parket, innihurðir eru hvítar, yfirfelldar, frá Parka sem gefa íbúðinni stílhreint yfirbragð. Útgengt er á rúmgóðar og yfirbyggðar svalir.

Hægt er að leigja bílastæði í upphituðum bílageymslu gegn mjög hóflegu gjaldi og þar er einnig í boði aðgengi að bílastæðum með rafhleðslum fyrir rafbíla.

Fallegt sameiginlegt útisvæði er milli bygginganna með leiktækjum fyrir börn.

Í næsta nágrenni eru útivistar- og náttúrusvæði bæði í Laugarnesi og við Laugardal, sundlaug, líkamsrækt, gönguleiðir og öll helsta þjónusta í göngufæri.

Nánari upplýsingar fást hjá:
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: hrannar@domusnova.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.



 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
02/01/202449.250.000 kr.44.400.000 kr.42.1 m21.054.631 kr.
09/03/202344.900.000 kr.19.642.000 kr.42.1 m2466.555 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugavegur 145
Skoða eignina Laugavegur 145
Laugavegur 145
105 Reykjavík
49.1 m2
Fjölbýlishús
211
1118 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Grænahlíð 20
Skoða eignina Grænahlíð 20
Grænahlíð 20
105 Reykjavík
50.4 m2
Fjölbýlishús
211
1089 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Mávahlíð 32
Skoða eignina Mávahlíð 32
Mávahlíð 32
105 Reykjavík
57.1 m2
Fjölbýlishús
211
979 þ.kr./m2
55.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunteigur 15
Skoða eignina Hraunteigur 15
Hraunteigur 15
105 Reykjavík
45.4 m2
Fjölbýlishús
312
1152 þ.kr./m2
52.300.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin