Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Víðihlíð 3 íbúð 104 - Nýbygging
Glæsilegt 4ra herbergja endaíbúð á jarðhæð og með sér inngangi í ný fjölbýlishúsi í Hörgársveit - stærð 102,5 m²
* Steypt hús með steyptri loftaplötu og timbur þaki.
* Ál/tré gluggar, þrefalt gler í gluggum.
* Hvítar innhurðar.
* Innréttingar eru frá Ikea.
* Ísskápur með frysti, ofn, örbylgjuofn, helluborð og vifta fylgja með við sölu.
* Loft verða klædd með hljóðdempandi plötum nema baðherbergi.
* Eignin uppfyllir hljóðvistarflokk A samkvæmt staðlinum ÍST 45 sem er umfram lágmarkskröfur byggingarreglugerðar um kröfur fyrir hljóðeinangrun innbyrðis á milli íbúðareininga.
* Áætlaður afhendingartími eignar er ágúst / september 2026
Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í alrými, baðherbergi með þvottaaðstöðu, þrjú svefnherbergi og geymslu.
Forstofa er með ljósum flísum á gólfi og þreföldum hvítum fataskáp.
Eldhús, matt dröppuð L-laga innrétting með borðplötu úr harðplasti í hvítu marmaralíki. Veggplötur á milli skápa eru samskonar og borðplata, marmaralíki. Ísskápur með fyrsti, span helluborð, ofn,örbylgjuofn og vifta fylgja með. Forstykki fyrir innbyggða uppþvottavél fylgir með.
Stofa og eldhús eru í björtu alrými með gluggum til tveggja átta. Harðparket verður á gólfum og innfelld lýsing í loftum. Úr eldhúsi er gengið út á steypta verönd, skráð 6,3 m² að stærð.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, hvítri innréttingu, speglaskáp, upphengdu wc, walk-in sturtu, innfelldri lýsingu og opnanlegum glugga. Innrétting er á baðherberginu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með hvítum fataskápum. Innfelld lýsing er í lofti í hjónaherbergi. Stærð herbergja er skv. teikningum 10,9 , 9,7 og 9,0 m².
Geymsla er skv. teikningum 6,3 m² að stærð og þar er harðparket á gólfum.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla/inntaksrými er undir stigapalli skráð 26,0 m² að stærð
Annað
- Steypt verönd.
- Gólfhiti er í allri íbúðinni og handklæðaofn á baðherbergi.
- Vélræn loftræsting er úr baðherbergi og geymslu og í hjónaherbergi er „lunga“.
- Ídráttarrör eru úr inntaksrými út í bílaplan fyrir mögulega rafhleðslu.
- Nánari skilalýsingu má nálgast hjá fasteignasölu.
- Byggingarverktaki: Hamrar Byggingarfélag ehf.
Eignin er í einkasölu
Kaupandi greiðir skipulagsgjald eignar, 0,3% af brunabótamati eignar þegar það verður lagt á.
Þrívíddar teikningar eru eingöngu til hliðsjónar - eitthvað misræmi getur verið á milli þeirra og aðalteikninga.
Upplýsingar í skilalýsingu geta breyst á byggingartíma. Leitast verður við að halda sambærilegum gæðum byggingarhluta og íhluta, breytist þeir á byggingartíma.
Allt efni er birt með fyrirvara um hugsanlegar villur.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.