Lögeign kynnir eignina Garðarsbraut 67, 640 Húsavík, íbúð 302Um er að ræða 51,3 Fm íbúð (þar af er 5,4 fm geymsla á jarðhæð eignarinnar ) á þriðju hæð í fjögurra hæða fjöleignarhúsi. Húsið er byggt árið 1975 og stendur á flottum útsýnisstað. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin og fyrir nokkrum árum var farið í miklar framkvæmdir á því að utan þar sem m.a var farið í múrviðgerðir, húsið málað, svalir klæddar að utan, farið í glerskipti og sett múrkerfi með einangrun utan frá á stafna hússins. Árið 2006 var skipt um þakjárn, pappa, klæðningu og þakrennur.
Nánari lýsing:Komið er inn í parketlagða forstofu sem er í opnu rými með bæði stofunni og eldhúsinu. útgengt er út á svalir með góðu útsýni úr stofunni, eldhúsið er með eldri innréttingu sem er bæði með efri og neðri skápum. eitt svefnherbergi er í íbúðinni sem er parketlagt og með fataskáp. Baðherbergið er með sturtubaðkari, lítilli innréttingu, wc og tengi fyrir þvottavél.
Annað:- Sérgeymsla fylgir íbúðinni á jarðhæð eignarinnar sem er 5,4 M²
- Þakjárn endurnýjað ásamt einangrun á þaki árið 2006
- Húsið málað og farið í múrviðgerðir að utan fyrir nokkrum árum
- Klætt utan á svalir og farið í glerskipti á sama tíma og hús var málað og farið í múrviðgerðir
- Stórt bílaplan er fyrir framan eign með bundnu slitlagi.
- Við hlið eignarinnar er góður leikvöllur
Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu Hermann@logeign.is eða Hinrik Marel Jónasson Lund lgf, í síma 8350070 eða netfanginu Hinrik@logeign.isForsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á