Til leigu glæsileg skrifstofuhæð, 15. hæð, um 820 fm. í þessari glæsilegu skrifstofubyggingu Turninum við Smáratorg. Laust strax!
Heil skrifstofuhæð á 15. hæð með hlutdeild í sameign um 820 fm. í þessari glæsilegu skrifstofubyggingu Turninum. Hæðin er fullbúin og skiptist í lokaðar skrifstofur og opin rými. Loftræstikerfi er á hæðinni. Fyrir miðju hæðarinnar er lyftu og stigahús. 6 öflugar lyftur eru í húsinu. Val er um aðgangsstýringu með sérlyklum að lyftum. Allir starfsmenn í húsinu hafa aðgang að bílakjallara hússins, er þar að finna 480 bílastæði. Ýmis þjónusta er í byggingunni og nær umhverfi og til stendur að opna nokkra litla veitingastaði á 2. hæð sem snýr að Smáralind. Afar glæsilegt skrifstofuhúsnæði sem þjónar öllum nútíma kröfum og þægindum.
Turninn býður upp á marga góða kosti bæði fyrir fyrirtæki og einstaklinga en bygging hefur um langt árabil verið afar vinsæl hjá félaginu. Húsvörður er í byggingunni. Mikill fjöldi bílastæða sem og rafbílastæði bæði í bílastæðakjallara og á stórum bílastæðaplönum úti allt í kringum bygginguna. Þá er hjólageymsla í byggingunni ásamt sameiginlegu sturtu- og búningaaðstöðu.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali, s. 897 7086 hmk@jofur.is