Fasteignaleitin
Skráð 23. ágúst 2026

Grundargata 6 efri hæð

FjölbýlishúsVesturland/Grundarfjörður-350
94.9 m2
3 Herb.
1 Baðherb.
Verð
39.900.000 kr.
Fermetraverð
420.443 kr./m2
Fasteignamat
26.650.000 kr.
Brunabótamat
49.800.000 kr.
Mynd af Elín Auður Traustadóttir
Elín Auður Traustadóttir
Lfs.
Byggt 1955
2. hæð
Garður
Pallur
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2115021
Landnúmer
136724
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Ekki vitað.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Inngangur
Sérinngangur
CROISETTE kynnir í einkasölu rúmgóða og bjarta þriggja herbergja íbúð á annarri hæð við Grundargötu 6 í Grundarfirði. Eignin er á efri hæð með sérinngangi í góðu tvíbýli og er skráð 94,9 fm að stærð og skiptist í stofu og borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Vel skipulögð eign, stutt í alla helstu þjónustu. Allar nánari upplýsingar veitir Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is. 

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT

Nánari lýsing:
Forstofa: Komin inní forstofu með flísum á gólfi.
Stofa og borðstofa: Stofa og borðstofa eru í einu rými, parket á gólfi. 
Eldhús: Eldhús með viðarinnréttingu, gott skápapláss, innbyggð uppþvottavél, ofn í vinnuhæð, helluborð og háfur. Góður borðkrókur. Flísar á gólfi. Hiti í gólfi.
Svefnherbergi I: Rúmgott svefnherbergi með góðum fataskáp, harðparket á gófli.
Svefnherbergi II: Gott herbergi með fatahengi, harðparketi á gólfi. 
Baðherbergi: Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtuaðstöðu, borð með handlaug, skápur, upphengt salerni, handklæðaofn og góður opnanlegur gluggi. Hiti í gólfi. 

Í sameign er þvottahús sem er sameiginlegt með neðri hæð. Þaðan er útgengi út í garð.

Endurbætur síðustu ár að sögn seljanda:
2003 - Eldhús og baðherbergi endurnýjuð, nýjar vatnslagnir og rafmagnshiti settur í gólf baðherbergis og eldhúss.
2003 - Nýtt rafmagn dregið í alla íbúðina og skipt um rofa og tengla. 
2003 - Nýjir gluggar settir í borðstofu, baðherbergi og svefnherbergi í vesturátt.
2008 - Ný útidyrahurð. Nýjir gluggar á svefnherbergi austan megin. Nýr gluggi á geymslu og ný þvottahúshurð. 
2021 - Nýjir ofnar í svefnherbergjum og stofu.
2022 - Rafmagnhleðslustöð sett upp. Nýr skápur á baðherbergi ásamt borði undir vaskinn.
2025 - Harðparket sett á stofu og gang. Nýr skápur í herbergi austanmegin.
2026 - Gluggar að framanverðu teknir upp og sett nýtt gúmmí og nýjir listar. Nýr gluggi í eldhúsi.  
2026 - Skólp-  og vatnslagnir endurnýjaðar í þvottahúsi. 

Endurbætur við húsið að utan:
2015 - Nýtt járn á húsið að vestanverðu.
2019 - Ný stétt að vestan- og norðanverðu. Nýjar vatnslagnir að húsi og skólplagnir endurnýjaðar að húsi. 
2020 - Ruslageymsla sett upp.
2021 - Nýtt járn á húsið að sunnanverðu.
2024 - Drenað fyrir framan húsið. 
2024 - Nýtt járn á húsið að framanverðu.
2025 - Pallur fyrir framan hús. 

Allar nánari upplýsingar veitir:
Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is

Eignin Grundargata 6 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 211-5021, birt stærð 94.9 fm.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (16)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Baughamar 3 íb. 201
Baughamar 3 íb. 201
221 Hafnarfjörður
113.7 m2
Fjölbýlishús
413
720 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (118)
Hleðslustöð
Opið hús:25. ágúst kl 17:00-17:30
118.jpg
Skoða eignina Laugaborg (118)
Laugaborg (118)
105 Reykjavík
92.3 m2
Fjölbýlishús
312
973 þ.kr./m2
89.800.000 kr.
Skoða eignina Háaleitisbraut 49
Opið hús:27. ágúst kl 17:00-17:30
Háaleitisbraut 49
108 Reykjavík
93.4 m2
Fjölbýlishús
312
695 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (205)
Hleðslustöð
Opið hús:25. ágúst kl 17:00-17:30
1.jpg
Skoða eignina Laugaborg (205)
Laugaborg (205)
105 Reykjavík
86.8 m2
Fjölbýlishús
312
990 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin