Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölum Ásgarð 26, 108 Reykjavík:Um er að ræða einstaklega fallegt og vel staðsett endaraðhús á þremur hæðum á frábærum stað í Fossvoginum. Birt stærð eignar samkvæmt fasteignaskrá er 132,2 fm.
Eignin er mikið endurnýjuð að innan sem utan. Gott aðgengi er að húsinu og sér bílastæði fyrir framan eignina og sameiginleg stæði á austurhlið hússins. Stutt er í grunn- og leikskóla og ýmsa alhliða þjónustu.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXSkipulag eignar:Fyrsta hæð: Anddyri, stigagangur, stofa / borðstofa, eldhús og gestasalerni.
Önnur hæð: Þrjú svefnherbergi, baðherbergi, gangur og geymsla (skápur).
Kjallari: Í kjallara er sérgeymsla og sameiginlegt þvottahús, anddyri og stigagangur. Garðhýsi ca. 9 fm á lóð fylgir þessari íbúð.
Nánari lýsing:
Fyrsta hæð:Anddyri: Fatahengi, hvítur veggskápur, flísar á gólfi.
Stofa / borðstofa: Rúmgóð og björt, útgengi út á suðursvalir með flísum, parket á gólfi.
Eldhús: Rúmgott, hvít innrétting og laus eyja með skúffum, innbyggð uppþvottavél, bakaraofn, helluborð, flísar á vegg, borðkrókur, parket á gólfi.
Gestasalerni: Endurnýjað 2020. Inn af forstofu, hvít innrétting með skúffum, upphengt salerni, gólfhiti, flísar á gólfi og salerniskassa.
Stigagangur: Stigi upp á efri hæð, ullarteppi á gólfi.
Önnur hæð: Hjónaherbergi: Rúmgott, innbyggðir fataskápar, útgengi út á suðursvalir með flísum, korkur á gólfi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott, innbyggðir fataskápar, útgengi út á suðursvalir með flísum, korkur á gólfi.
Svefnherbergi 3: Rúmgott, fataskápur, korkur á gólfi.
Baðherbergi: Endurnýjað 2020. Fallega innréttað baðherbergi, hvít innrétting og speglaskápar, innbyggður skápur ofan við salerni, walk in sturta með innbyggðum blöndunartækjum, gólfhiti, fallegar flísar á veggjum og gólfi.
Gangur: Komið er upp í teppalagðan gang, geymsluskápur í enda gangsins.
Í kjallara: Sérgeymsla: 8,1 sérgeymsla (merkt 0002), málað gólf.
Sameign í kjallara:Anddyri: Flísar á gólfi.
Þvottahús: Rúmgott, flísar á gólfi.
Stigagangur: Stigi upp í íbúð á fyrstu hæð, ullarteppi á gólf.
Húsið: Ásgarður 26-32 er steinsteypt hús sem byggt er 1960. Gólfhiti er á salerni á fyrstu hæð og baðherbergi á annarri hæð og einnig í sameiginlegu anddyri og þvottahúsi í kjallara. Innanhúss arkitektinn Guðrún Atladóttir hefur teiknað flestar breytingar sem gerðar hafa verið á eigninni.
Lóð: Sameiginleg lóð fyrir báðar íbúðirnar á baklóð framan við Ásgarð 26.
Staðsetning: Smellið hér. Að sögn eiganda er búið að endurnýja eignirnar mikið að innan sem utan s.s:* 2022-2023 Útveggir viðgerðir og steinaðir.
* 2022-2023 Nýir gluggar og gler.
* 2022-2023 Nýjar svalahurðir.
* 2019-2020 Nýtt skólp (Undir húsi og út í garð).
* 2019-2020 Nýjar neysluvatnslagnir.
* 2020 Gólfhiti í salerni og baðherbergi, sameiginlegu anddyri og þvottahúsi í kjallara.
* 2020 Baðherbergi og salerni endurnýjuð í hólf og gólf.
* 2020 Ný ullarteppi á stiga og gang á annarri hæð. Nýtt ullarteppi á stiga niður í kjallara.
* 2020 Nýjar innihurðar (Ekki í geymslu).
* 2017 Vesturgafl klæddur.
* 2016 Skipt um járn á þaki.
* 2016 Viðgerð á útitröppum / endursteyptar.
* 2014 Austurgafl klæddur.
* 2013 Ný útihurð á fyrstu hæð.
* 2004 Fyrsta hæð mikið endurnýjuð, nýtt gegnheilt hickory parket og ný eldhúsinnrétting, nýjar flísar á veggjum.
* Rafmagn mjög mikið endurnýjað samhliða öðrum framkvæmdum.
Virkilega fallegar og mikið endurnýjaðar eignir miðsvæðis í borginni þaðan sem stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.
Eignin í kjallara er einnig á sölu og hér er vefslóðin á hana: Vefslóð á eignina:
Smellið hér.Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is.