Fasteignaleitin
Opið hús:30. sept. kl 17:30-18:00
Skráð 24. sept. 2026

Næfurás 2

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
186.8 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
157.500.000 kr.
Fermetraverð
843.148 kr./m2
Brunabótamat
106.250.000 kr.
Byggt 1984
Svalir
Pallur
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
20462061
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

GARÐATORG EIGNAMIÐLUN kynnir til sölu fallegt  og vel viðhaldið endaraðhús við Næfurás 2 í Reykjavík.  Húsið er á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr, sólpalli og fallegum garði á þessum barnvæna og vinsæla stað í Selásnum.  Hér er um að ræða vel skipulagt hús með snyrtilegri að komu, fallegri stofu og borðstofu, eldhúsi, fjórum svefnherbergjum, rúmgóðu baðherbergi, þvottahúsi, gestasalerni, bílskúr og skjólsælum garði.
 
Eignin er staðsett á fallegum og rólegum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, svo sem leikskólana Heiðaborg og Rauðaborg, Selásskóla, Árbæjarskóla, matvöruverslanir, heilsugæslu, bókasafn og ýmsa aðra starfsemi. Íþróttastarf Fylkis er í næsta nágrenni sem og Árbæjarlaug, útivistarsvæði og fallegar gönguleiðir í  Elliðaárdal og við Rauðavatn. 

Bókið skoðun: Unnur, sími: 8660507 eða unnur@gardatorg.is

Nánari lýsing:
Forstofa: Náttúruflísar á gólfi og fatahengi.
Stofa: Björt og stór með stórum gluggum og arni. Gegnheilt eikarparket á gólfi.
Borðstofa: Rúmgóð með glugga og falleg hurð þar sem gengið er út á 36fm verönd og út í garð. Gegnheilt eikarparketi og náttúrufflísar á gólfi. 
Eldhús: Sérsmíðuð eikarinnrétting með góðu skápapláss, nýlegtur ofn í vinnuhæð, háfur, nýtt 90cm spanhelluborð og ískápur. Fallegur borðkrókur við glugga. Inn  af eldhúsi er lítið búr.  Náttúruflísar á gólfi.
Svefnherbergi:  Fjögur svefnherbergi eru á eftir hæð. Vandaðir fataskápar frá Axis og parket á gólfi.  Lofthæð í tveimur herbergjanna er mikil og nýtist á skemmtilegan hátt. Út af einu herbergi eru svalir með fallegu útsýni yfir borgina.
Baðherbergi: Hvít innrétting með góðu skápaplássi, upphengt salerni, hanklæðaofn, sturtuklefi og baðkar. Ljósar flísar á gólfi og veggjum.
Þvottahús:  Mög rúmgott með hvítri nýlegri innréttingu, skolvaski og ljósum flísum á gólfi.
Gestasalerni: Flísar á gólfi og sturta.
Bílskúr: Innangengt í bílskúr og þar er nýleg stálfleka bílskúrshurð ásamt opnara. Snjóbræðsla er í bílaplani fyrir framan bílskúrinn.
Garður: Skjólsæll með fallegum gróðri og nokkuð stórum sólpalli.
Um 15fm manngengt geymsluloft er yfir efri hæð hússins sem ekki telst með í skráðri fermetratölu.
Þrjú bílastæði fylgja eigninni og þriggja fasa hleðslustöð er við stæðin.

Húsið stendur á eignarlóð sem þýðir að ekki er greitt fyrir lóðarleigu og fasteignagjöld eru þar af leiðandi mun lægri en tíðkast.  Birt stærð eignarinnsr skv. FMR er 186,8fm, þar af er bílskúr skráður 24fm.

Endurbætur skv. upplýsingur frá seljendum:
Rafmagnstafla endurnýjuð árið 2025.
Timburgirðing í kringum garð endurnýjuð árið 2024.
Þakjárn málað reglulega, síðast fyrir 4 árum síðan.
Útveggir, gluggar og tréverk utanhúss málað reglulega, síðast í sumar.

Þetta er áhugaverð og notaleg eign á eftirsóttum stað í höfuðborginni sem hentar fjölskyldufólki einstaklega vel.

Nánari upplýsingar veitir:
Unnur Ýr Jónsdóttir löggiltur fasteignasali, sími: 8660507 eða  unnur@gardatorg.is


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Garðatorg eignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.


 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því Garðatorg eignamiðlun skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar 
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Garðatorg eignamiðlun ehf
http://www.gardatorg.is

Myndir (58)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eirhöfði 7d (511)
Efsta hæð
Eirhöfði 511.jpg
Eirhöfði 7d (511)
110 Reykjavík
183 m2
Fjölbýlishús
413
1175 þ.kr./m2
215.000.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7a (305)
1.jpg
Eirhöfði 7a (305)
110 Reykjavík
110.4 m2
Fjölbýlishús
312
887 þ.kr./m2
97.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7a (201)
1.jpg
Eirhöfði 7a (201)
110 Reykjavík
136.4 m2
Fjölbýlishús
413
1004 þ.kr./m2
136.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7c (606)
1.jpg
Eirhöfði 7c (606)
110 Reykjavík
135.1 m2
Fjölbýlishús
413
1110 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin