Fasteignaleitin
Skráð 9. okt. 2026

Álalækur 1-3

FjölbýlishúsSuðurland/Selfoss-800
86.2 m2
3 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
56.000.000 kr.
Fermetraverð
649.652 kr./m2
Brunabótamat
55.250.000 kr.
Byggt 2021
2. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25115902
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Borg fasteignasala og María Mjöll kynna Álalæk 1-3 Selfossi. Íbúð á annari hæð í nýlegu lyftuhúsi. Húsið er á þremur hæðum byggt 2021. Íbúðin er 86,2 m2.

** Bókið skoðun hjá Maríu í síma 8663934 eða maria@fastborg.is**

 
Skipulag: Anddyri, stofa, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús innaf baðherbergi, geymsla í sameign og hjólageymsla.

Nánari lýsing: 
Gengið er inní eignina um sérinngang af svölum, komið er inní flísalagt anddyri með fatahengi. Eldhús og stofa eru í alrými. Eldhús með dökkri viðarinnréttingu og hvítum efriskápum, ofn í vinnuhæð og spanhelluborð í eyju sem hægt er að sitja við. Útgengi er úr stofu út á svalir, harðparket á gólfi. Svefnherbergin eru þrjú, hjónaherbergi með harðparketi á gólfi og fataskápum, barnaherbergin með harðparketi á gólfi og annað þeirra með fataskáp. Baðherbergi er flísalagt á gólfi og að hluta til á veggjum með walk in sturtu, innrétting undir vaski og speglaskápur þar fyrir ofan, upphengt salerni og handklæðaofn. Innaf baðherbergi er þvottahús, innrétting með plássi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.

Annað: Sameiginlegt rými er á jarðhæð hússins fyrir hjól og vagna, einnig er sér geymsla sem tilheyrir íbúðinni.

Nánari upplýsingar veitir: María Mjöll Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8663934
eða maria@fastborg.is


Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.



 
 
 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eyravegur 34B
Skoða eignina Eyravegur 34B
Eyravegur 34B
800 Selfoss
93,6 m2
Fjölbýlishús
514
628 þ.kr./m2
58.800.000 kr.
Skoða eignina Austurhólar 10
Hleðslustöð
Skoða eignina Austurhólar 10
Austurhólar 10
800 Selfoss
83,2 m2
Fjölbýlishús
312
684 þ.kr./m2
56.900.000 kr.
Skoða eignina Ásakór 11
Opið hús:14. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Ásakór 11
Ásakór 11
203 Kópavogur
85,8 m2
Fjölbýlishús
211
815 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Breiðhöfði 15
Opið hús:10. okt. kl 14:00-14:30
Breiðhöfði 502.jpg
Skoða eignina Breiðhöfði 15
Breiðhöfði 15
110 Reykjavík
90,1 m2
Fjölbýlishús
312
1109 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin