Gimli fasteignasala og Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse kynna: Vandað og vel við haldið fjölskylduhús í góðri staðsetningu við Daltún 17 í Kópavogi. Sjö svefnherbergi, þrjú baðherbergi, björt og opin rými, góð suður og austur verönd með heitum potti og skjólveggjum. Auka íbúð í kjallara með sér inngangi. Stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla, verslanir, góðar gönguleiðir og stutt í almenningssamgöngur. Húsið er byggt 1985, skráð alls 304,4fm. Íbúðarrými 276,4fm og bílskúr 28fm.Nánari upplýsingar veitir: Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 7927576, tölvupóstur gudmunda@gimli.is eða gimli@gimli.isNÁNARI LÝSING: Daltún 17 er vandað og vel við haldið einbýlishús á þremur hæðum auk bílskúrs.Stór og góð timbur og hellulögð verönd er í kringum húsið á þrjá vegu, suður, austur og vestur, með fallegu gróðri, uppbyggðum beðum, snjóbræðslu að hluta og heitum potti.1. hæð 107,3fmForstofa: Gengið er inn í parketlagða forstofu af suðurverönd.
Forstofubað Flísalagt með hvítum hreinlætistækjum, upphengt salerni, sturta.
Hol / gangur: Úr forstofu er komið inn í hol sem tengir saman 1. og 2. hæð með góðum stiga. Stór fataskápur. Úr holi er einnig gengið í kjallara.
Skrifstofa/herbergi: Gengið er inn í rúmgott og bjart herbergi úr holi.
Stofa / borðstofa: Björt og opin með parketi á gólfum og útgengt í sólstofu og þaðan í garð.
Eldhús: Opið við stofu og borðstofu, parket á gólfi, hvít og beiki innrétting, ofn í vinnuhæð, tvöfaldur ísskápur og uppþvottavél.
Sólstofa 11,2fm: Gengið úr stofu/borðstofu, flísar á gólfi, gólfhiti, útgengt í garð.
2. hæð 72fm. Gólfflötur er mun stærri þar sem hæðin er að hluta undir súð.Hol: Komið er upp stiga í gott og bjart hol þaðan sem gengið er inn í önnur rými hæðarinnar. Tveir opnanlegir þakgluggar eru í þessu rými og gott og aðgengilegt geymsluloft.
Svefnherbergi I: Hjónaherbergi með góðum fataskáp, parketi á gólfi, útgengt á suður svalir.
Svefnherbergi II: Góður fataskápur, parketi á gólfi, svefnloft.
Svefnherbergi III: Góður fataskápur, parketi á gólfi, svefnloft.
Svefnherbergi IV: Parket á gólfi, útgengt á suður svali, möguleiki á að breyta í þvottaherbergi (allar lagnir og loftun til staðar).
Baðherbergi: Flísalagt, góð innrétting og skápar, upphengt salerni, baðkar, þakgluggi.
Í herbergjum eru geymslurými undir súð sem nýtast vel og hafa gott aðgengi.
Kjallari / auka íbúð 97,1fm.
Komið er inn í íbúðina um sér inngang á norðurhlið hússins en einnig er innangengt af hæð.
Anddyri/gangur: Flísar á gólfi, stigi upp á hæð.
Þvottahús: Rúmgott með góðri innréttingu, flísalagt, gott þurrk og geymslurými. Þvottahús er í dag nýtt fyrir allt húsið.
Bað: Flísar á gólfi og veggjum, salerni, innrétting með vaski og sturta.
Eldhús og stofa: eru í sameiginlegu opnu rými, góð innrétting með eldavél, dúkur og parket á gólfum.
Svefnherbergi I: Rúmgott og bjart með góðum skápum, gluggum á tvo vegu, parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Minna herbegi sem í dag er nýtt sem geymsla, gluggar á tvo vegu.
Bílskúr, 28fm: Rafdrifinni hurð, geymsluloft, innrétting og góð vinnuaðstaða, vatn, 3ja fasa rafmagn, hleðslustöð.
Framkvæmdir og viðhald á húsinu skv. núverandi eigendum.2024Ný vatnsrör þrædd í bílskúr.
2023Hús málað að utan, vatn í eldhúsi yfirfarið, ofnar yfirfarnir.
2022Kjallari málaður að hluta, rafmagnstöflur endurbættar, 3ja fasa rafmagn dregið í bílsskúr og sett upp hleðslustöð.
2021Bílastæði hellulagt og lögð snjóbræðsla
2020Pallar og grindverk yfirfarin og máluð, hluti af gleri í sólskála endurnýjað
2018Stigi á milli hæða teppalagður með vönduðu ullarteppi.
2017Bílskúrshurð og gluggar málaðir.
20142. hæð endurnýjuð: Skipt um þak, járn, pappa, einangrun og timbur eftir þörfum. Milliveggir endurnýjaðir, geymsluháaloft smíðað og settur niðurdraganlegur stigi fyrir gott aðgengi, rafmagn endurnýjað, loft klædd, baðherbergi endurnýjað. Hiti settur í gólf á baði, holi og suðausturherbergi. Leiðslur lagðar og niðurfall sett í gólf (gert er ráð fyrir að hægt sé að hafa þvottaherbergi á efri hæð) Hæðin máluð. Innihurðar endurnýjaðar.
Baðherbergi á 1. hæð endurnýjað og hiti settur í gólf á baðherbergi og forstofuherbergi.
Rafmagn yfirfarið, innstungum fjölgað á miðhæð.
Veggur milli skrifstofu og stofu hljóðeinangraður, gólfefni endurnýjuð að hluta, Innihurðar endurnýjaðar á 1. hæð.
2012Hiti settur í gólf í þvottahúsi í kjallara og gólf flísalagt.
2010Pallur við vesturenda endurnýjaður, heitur pottur (hitaveitupottur). Þak fyrir framan útidyr stækkað. Grafið frá húsi, dren endurnýjað við sunnanvert hús, snjóbræðsla lögð og hellulagt.
Eignin Daltún 17 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 205-9457, birt stærð 304.4 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Nánari upplýsingar veitir: Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 7927576, tölvupóstur gudmunda@gimli.is eða
gimli@gimli.isGimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá
Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isGimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala