Fasteignaleitin
Skráð 11. mars 2026

Fornistekkur 3

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
342.4 m2
9 Herb.
6 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
195.000.000 kr.
Fermetraverð
569.509 kr./m2
Fasteignamat
178.700.000 kr.
Brunabótamat
158.600.000 kr.
Mynd af Óskar H. Bjarnasen
Óskar H. Bjarnasen
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2047088
Landnúmer
111790
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegt Búið að endurnýja höfuðrofa í öllum 5 töflum
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Málaðir timburgluggar. Eitt opnanlegt fag þarnast endurnýjunar
Þak
Þakjárn og þakpappi endurnýjað 2019
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Vestur svalir
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita/Ofnakerfi Allir ofnar endurnýjaðir sl. 5 árum
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Skipulagi hússins hefur verið breytt frá samþykktum teikningum. Lokað hefur verið milli hæða og útbúnar hafa verið tvær ,,íbúðir" á neðri hæð hússins. Nánar um ástand eignar vísast til ástandsyfirlýsingar fyrri eigenda, dagsett 12.2.2025.
Valhöll fasteignasala kynnir: Fallegt og reisulegt einbýlishús með tvöföldum bílskúr í grónum og rólegum hluta Stekkjanna. Tvær aukaíbúðir eru á neðri hæð, báðar með sérinngangi og löglegri lofthæð. Möguleiki er á mjög góðum leigutekjum. Húsið hefur verið endurnýjað á undanförnum árum — m.a. þakklæning, nýtt eldhús, gestasnyrting og sér þvottahús. Öll efri hæðin og hluti neðri hæðar hafa fengið nýjar hurðar. Nýleg upphituð innkeyrsla með steyptu mynstri. Tvöfaldur bílskúr, stór suður pallur og fallegur gróður sem veitir skjól ásamt því að ramma inn þennan sælureit.

Stór og fjölskylduvænn valkostur fyrir þá sem vilja nýta tekjumöguleika og búa vel. Eign afhendist við undirritun kaupsamnings.


Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 691-1931 eða oskar@valholl.is

Samkvæmt fasteignayfirliti HMS er húsið skráð alls 342,4 fm sem skiptist niður íbúð 293,4 fm og bílskúr 49 fm bílskúr. Auk þess eru u.þ.b. 49 fm óskráður kjallari undir bílskúrnum og ca. 12 fm geymsla á baklóð. Samtals eru nýtanlegir fermetrar því yfir 400 fm.

Nánari lýsing:
Efri hæð, aðalíbúð (skráð stærð 146,7 fm):

Forstofa: Flísalögð, rúmgóð með fataskáp með rennihurð. Rúmgott rými.
Snyrting: Við forstofu/anddyri. Endurnýjað árið 2014 með vönduðum blöndunartækjum og fallegum flísum.
Alrýmið: er mjög bjart og rúmgott með stórum gluggum á þrjá vegu og mikilli lofthæð. Fallegt útsýni. Stofan er þrískipt með harðparketi á gólfum. Borðstofa til hliðar við eldhús þaðan sem útgengt er á vestur svalir. Mjög rúmgóð setstofa með fallegum arni og sjónvarpsstofa sem auðvelt væri að breyta í fjórða herbergið.
Eldhús: Nýlega endurnýjað með fallegri IKEA innréttingu með stein í borði og góðum tækjum m.a. háfi yfir helluborði, ofn og örbylgjuofn. Flísar á gólfi. Fallegt útsýni er úr eldhúsi.
Svefnherbergi: Þrjú herbergi við herbergjahol. Öll mjög rúmgóð þar af hjónaherbergi með stórum fataskáp. Í enda herbergjagangs er útgengt út á pall sem leiðir að bílskúr.
Þvottahús: Vel hannað með góðri innréttingu, pláss fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, skolvaski og góðri loftræstingu. Fallegir steindir gluggar gefa mikin svip.
Baðherbergi: Baðkar og sturta. Flísalagt í hólf og gólf. Opnanlegt fag á glugga. Skápainnrétting undir vaski og speglaskápur fyrir ofan.

Tvær aukaíbúðir eru á neðri hæð húss (skráð stærð er 146,7 fm).
Tveggja herbergja íbúð er mikið endurnýjuð. Rúmgóð stofa, flísalagt eldhús, baðherbergi með sturtuklefa ásamt tengi fyrir þvottavél. Stórt svefnherbergi.
Þriggja herbergja íbúðin er með flísalögðu anddyri þar sem er innfelldur fataskápur. Inn af forstofu er þvottahús með skolvaski. Góð stofa með parket á gólfi. Tvö rúmgóð svefnherbergi. Baðherbergi með nýlegum sturtuklefa. Eldhús með flísalögðu gólfi og með fínni innréttingu, stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp.

Bílskúr er 49 fm að stærð og með tveimur innkeyrsludyrum. Undir bílskúr er jafnstórt rými sem er í óskráðum fermetrum þannig að í raun er gólfflötur fasteignarinnar rúmir 390 fm. Baka til er einnig áhaldaskúr ca. 12 fm sem einnig eru til viðbótar við skráða fermetra.

Endurbætur síðustu ára: Að sögn fyrri eigenda var þakjárn og þakpappi endurnýjaður fyrir 5 árum síðan einnig var árið 2006 vatnsklæðning þakskeggs ásamt þakrennum og niðurfallsrörum endurjað. Regnvatnsbrunnur og skolpbrunnur í lóð voru endurnýjaðir árið 2015 og tveimur árum síðar var lögð sér skolplögn fyrir minni aukaíbúðina að brunni í lóð. Allir ofnar og ofnakranar í húsinu hafa verið endurnýjaðir á síðustu 5 árum. Allar hurðir og karmar efri hæðar og hluta neðri hæðar hafa verið endurnýjaðir.

Lóð: Glæsilegur pallur er við húsið að framanverðu sem snýr í suður. Lagt hefur verið fyrir heitum/köldum potti ásamt frárennslislögnum. Glæsileg stimpilsteypt heimreið með hita undir.

Vel staðsett fjölskylduheimili stutt frá allri helstu þjónustu og með auðveldu aðgengi að stofnbrautum.

Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 691-1931 eða oskar@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits:   
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
15/08/2025155.500.000 kr.180.000.000 kr.342.4 m2525.700 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1974
4.9 m2
Fasteignanúmer
2047088
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
18.600.000 kr.

Myndir (73)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Freyjuvellir 17
Bílskúr
Skoða eignina Freyjuvellir 17
Freyjuvellir 17
230 Reykjanesbær
183.5 m2
Einbýlishús
514
554 þ.kr./m2
101.600.000 kr.
Skoða eignina Smáratún 14
Bílskúr
Skoða eignina Smáratún 14
Smáratún 14
230 Reykjanesbær
202.5 m2
Einbýlishús
725
572 þ.kr./m2
115.800.000 kr.
Skoða eignina Dalsel 29
Bílskúr
Skoða eignina Dalsel 29
Dalsel 29
109 Reykjavík
90.3 m2
Fjölbýlishús
312
719 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Skúlagata 4
Bílskúr
Skoða eignina Skúlagata 4
Skúlagata 4
340 Stykkishólmur
383.9 m2
Einbýlishús
1439
208 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin