Opið hús:12. feb. kl 16:00-17:00
Skráð 7. feb. 2026

Vogaland 16

Tví/Þrí/FjórbýliHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
192.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
121.900.000 kr.
Fermetraverð
633.905 kr./m2
Fasteignamat
131.000.000 kr.
Brunabótamat
90.660.000 kr.
Mynd af Sigrún Gréta Helgadóttir
Sigrún Gréta Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1974
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2038279
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegt/Ekki vitað.
Raflagnir
Rafmagnstafla færð upp í seinni tíð. Ticino. Annað ekki vitað.
Frárennslislagnir
Upprunalegt/Ekki vitað.
Gluggar / Gler
Gler og listar endurnýjaðir að hluta eftir þörfum í gegnum árin.
Þak
Upprunalegt/Ekki vitað.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Austur- og Suðursvalir.
Upphitun
Hitaveita. Sér mælir fyrir íbúð.
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir efri hæð í tvíbýli að Vogalandi 16 í Fossvoginum í Reykjavík. Sér afgirtur afnotareitur er til suðurs frá stofu. Húsið er innst í botnlanga og út frá stofu og svölum er útsýni upp að Úlfarsfelli og til Bláfjalla. Göngufæri er í leik- og grunnskóla. Einnig íþróttasvæði Víkings og útivistarsvæði Elliðaárdals og Fossvogs. Frábærir hjóla- og göngustígar aftan við hús og undirgöng í allar áttir.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is 

Eignin skiptist í forstofu, gestasalerni, borðstofu, hol/skála, stofu, eldhús, þrjú herbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 192,3 m2. 


**HÉR GETUR ÞÚ SKOÐAÐ 3D AF EIGNINNI. KÍKTU Í HEIMSÓKN MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR!

*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SKOÐUN FIMMTUDAGINN 12. FEBRÚAR
 
Söluyfirlit má nálgast hér
Nánari lýsing:
Forstofa
 er inn af hellulagðri stétt með snjóbræðslu. Rúmgóð forstofa með hengi fyrir yfirhafnir. Ljósar gólfflísar.
Gestasnyrting er inn af forstofu. Salerni og handlaug. Vegg- og gólfflísar.
Borðstofa og hol/skáli eru saman í opnu rými. Útgengi er út á svalir til suðurs frá borðstofu. Léttur veggur er milli eldhúss og borðstofu. Inn af borðstofu er stofurými. Parket á gólfi.
Stofa er nýtt í dag sem stórt svefnrými og vinnuaðstaða. Hurð er milli borðstofu og stofu, en hægt er að opna á ný, bæði úr holi og borðstofu. Parket á gólfi.
Eldhús er með innréttingu á þremur veggjum og hægt að sitja við langt borð undir glugga á langhlið. Milli efri og neðri skápa eru hvítar flísar. Stæði er fyrir uppþvottavél og tvöfaldan ísskáp í innréttingu. Gashelluborð og háfur fyrir ofan. Parket á gólfi.
Herbergi I og II eru jafnstór og hlið við hlið á svefnherbergisgangi. Annað með léttum fataskáp. Parket á gólfum.
Herbergi III er innst á svefnherbergisgangi og er með útgengi út á svalir til austurs. Gluggar eru á tvo vegu. Hvítur fataskápur með rennihurðum.
Baðherbergi er rúmgott. Baðkar, upphengt salerni, sturtuklefi, innrétting undir handlaug og veggfestur skápur.
Þvottahús er handan við bílskúr og hefur áður verið hurð á milli. Þvottahús er rúmgott. Gluggi með opnanlegu fagi. Gólf- og veggflísar.
Geymsla er í kjallara. Þar er einnig inntak inn í húsið. Steypt gólf.
Bílskúr er með nýlegri bílskúrshurð, en inni er uppsett salerni, sturta og lítil eldhúsinnrétting. Býður upp á möguleika. Gluggar eru á tvo vegu. Parket og flísar á gólfi.
Bílastæði eru hellulögð og með snjóbræðslu.
Geymsluskúr er úti á lóð.

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
28/03/201969.800.000 kr.69.000.000 kr.192.3 m2358.814 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1974
2.2 m2
Fasteignanúmer
2038279
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.160.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Búðagerði 5
Bílskúr
Opið hús:11. feb. kl 12:00-12:45
Skoða eignina Búðagerði 5
Búðagerði 5
108 Reykjavík
163.9 m2
Fjölbýlishús
624
750 þ.kr./m2
122.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðargerði 33
Bílskúr
Skoða eignina Heiðargerði 33
Heiðargerði 33
108 Reykjavík
165.8 m2
Einbýlishús
513
783 þ.kr./m2
129.800.000 kr.
Skoða eignina Sogavegur 101
Bílskúr
Skoða eignina Sogavegur 101
Sogavegur 101
108 Reykjavík
178.5 m2
Hæð
613
616 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Búðagerði 5
Skoða eignina Búðagerði 5
Búðagerði 5
108 Reykjavík
163.9 m2
Fjölbýlishús
413
750 þ.kr./m2
122.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin