BÓKIÐ SKOÐUN - SÝNUM SAMDÆGURS - ELFA BJÖRK S: 692-0215Fasteignasalan TORG kynnir: Kinnargötu 92, íbúð 105, vel skipulagða og einstaklega vandaða 4 herbergja íbúð, ásamt stæði í bílakjallara í glæsilegu nýju lyftuhúsi á frábærum stað í Urriðaholtinu.
SMELLTU HÉR - SÖLUVEFUR KINNARGÖTU 92 Eignin er í heildina skráð 142,7 m2 og skiptist í anddyri/hol, rúmgott alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, 3 rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, 7,6 m2 geymslu í kjallara og bílastæði í lokuðum bílakjallara. Eigninni fylgja tveir sér afnotareitir - sem skilast með fullkláraðir með palli og skjólveggjum úr lerki. Eigninni fylgir einnig golfbílastæði í bílakjallara.Allar innréttingar eru frá VOKE3, steinn á borðum í eldhúsi og AEG heimilistæki. Vandaður frágangur og efnisval, t.d. hiti í gólfum, innbyggð blöndunartæki í sturtu, aukin lofthæð og innfelld lýsing.
Tímalaus og klassísk innanhússhönnun.
Húsið, sem er byggt eftir arkitektateikningum Davíðs Pitt, er staðsteypt fjölbýlishús á fjórum hæðum, klætt með læstri álklæðningu og því viðhaldslétt. Einstök staðsetning í Urriðaholtinu, stutt í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, golfvöllinn og útivistarsvæði.
Sjá nánar um frágang og útlit í skilalýsingu seljanda.
Lokafrágangur miðast við skilalýsingu seljanda og samþykktar teikningar.
Allar nánari upplýsingar veitir: Elfa Björk, lgfs., í síma 692-0215 eða elfa@fstorg.is.Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald kr. 2.500.- kr. af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.
5. Kaupandi greiðir skipulagsgjald af eigninni, þegar það verður lagt á.