Margrét Rós lgf. og Fasteignasalan TORG kynna í sölu bjarta og vel skipulagða 3 herbergja íbúð með sérinngangi og skjólgóðum palli við Svarthamra 58 í Grafarvogi. Um er að ræða íbúð á jarðhæð í vel góðu fjölbýlishúsi á eftirsóttum stað í Hamrahverfi. Íbúðin skiptist í forstofu, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, opið eldhús, stofu og borðstofu með útgengi á skjólgóðan pall. Sérgeymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla eru í sameign hússins. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós Löggiltur fasteignasali, í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is - *** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR *** Birt stærð eignar skv. fasteignaskrá HMS er 92,4 m² og eru allir innan íbúðar. Sérgeymsla sem tilheyrir eigninni skv eingaskiptalýsingu er ekki innan fermetratölu.StaðsetningSvarthamrar eru á vinsælum og fjölskylduvænum stað í Grafarvogi þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, íþróttasvæði, verslanir og alla helstu þjónustu. Fallegar göngu- og hjólaleiðir eru í næsta nágrenni og góð tenging við helstu samgönguæðar höfuðborgarsvæðisins. Um er að ræða vel skipulagða og nokkuð endurnýjaða íbúð með sérinngangi og skjólgóðum palli á eftirsóttum stað í Grafarvogi.
FÁÐU FRÍTT VERÐMAT Á ÞÍNA EIGN HÉRNánari lýsingForstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús er opið við stofu og borðstofu með viðar innréttingu, góðu skápaplássi og flísar á vegg milli efri og neðri skápa og harðparket á gólfi.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi með harðparket á gólfi og útgengi út á skjólgóðan pall.
Svefnherbergi I er rúmgott með harðparket á gólfi.
Svefnherbergi II er einnig rúmgott með harðparket á gólfi og góðum fataskápum.
Baðherbergi með nýlegri innréttingu, handlaug, upphengdu salerni, inngengri sturtu og sturtugleri, flísum á gólfum og veggjum ásamt innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.
Pallurinn sem snýr til suðurs og austurs er skjólgóður og afgirtur með skjóveggjum.
Sérgeymsla er í sameign hússins, ekki skráð innan heildarfermetra eignar.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
Framkvæmdir og viðhald á húsi:Á síðustu árum hefur verið farið í umfangsmikið viðhald á húsinu. Meðal annars voru gluggar voru teknir í gegn á pallahliðinni árið 2018, gaflar á húsi endurklæddir, skipt hefur verið um þakrennur og árið 2025 var farið í viðgerðir á þaki þar sem gert var við ryð og skipt um hluta þakklæðningar. Jafnframt hafa verið gerðar úrbætur í kjölfar ástandsskoðunar sem framkvæmd var af Verkís árið 2022.
Endurbætur á íbúð:Eignin hefur verið nokkuð endurnýjuð á síðustu árum, meðal annars var baðherbergi endurnýjað að mestu árið 2024, veggur milli eldhúss og stofu tekinn niður sama ár sem opnaði alrýmið, veggir málaðir árið 2025 og nýtt parket lagt ásamt því að loft voru máluð árið 2026.
Nánari upplýsingar veita:Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali / s.
856-5858 /
margret@fstorg.isDarri Örn Hilmarsson - Löggiltur fasteignasali / s. 767-0000 / darri@fstorg.is.
KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉRUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.