Fasteignaleitin
Skráð 16. sept. 2024
Deila eign
Deila

Hnjúkamói 4, íbúð 0103

FjölbýlishúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
94.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.800.000 kr.
Fermetraverð
631.468 kr./m2
Fasteignamat
14.980.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Byggt 2024
Þvottahús
Geymsla 5.1m2
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2530709
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
sérafnotaflötur í suður
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir:   Hnjúkamói 4, íbúð 0103, Þorlákshöfn .  Falleg, ný 4ra herbergja, 89,6m2 ENDAíbúð á jarðhæð ásamt 5,1m2 sér geymslu. 
Íbúðin afhendist fullbúin (án gólfefna) og er með sérinngang.  Afhending í febrúar 2025. 
** Stutt frá helstu þjónustu, skóla og íþróttasvæðum.  !
** Sjá staðsetningu á korti: https://ja.is/kort/?x=382352&y=374966&q=Hnj%C3%BAkam%C3%B3i%204%2C%20815%20%C3%9Eorl%C3%A1ksh%C3%B6fn&page=1&nz=15.07
 Möguleiki er á hlutdeildarláni.  Sjá upplýsingar:   https://island.is/hlutdeildarlan

** Bóka má skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com**


Eignin skiptist svo:
*  Rúmgott anddyri með tvöföldum fataskáp.
*  Stofu þaðan sem utangengt er á sérafnotaflöt í há-suður. 
*  Stofa og eldhús eru í opnu rými.
*  Fallegt eldhús með Svansvottaðri HTH innréttingu, Melamine filma er á eldhúsinnréttingu á neðri skápum og háum skápum. Skúffur með mjúklokun. 
Heimilistæki eru vönduð af AEG gerð, spanhelluborð, bakaraofn með sjálfhreinsikerfi. Stálvaskur með einnar handar blöndunartæki. Gert er ráð fyrir að hægt sé að vera með innbyggða uppþvottavél og ísskáp + frysti.
*  3 svefnherbergi. Hjónaherbergi með HTH fataskáp yfir heilan vegg. Barnaherbergi með fataskáp. Fataskápar ná upp í loft með aðfellu. Innvols innréttinga og fataskápa er hvítt, grindur í fataskápum eru krómaðar
*  Baðherbergi, flísalagt gólf, hluti veggja, sturtuhorn er flísalagt með 30x60 flísum. Upphengt salerni, baðinnrétting með handlaug í borði og einnar handar blöndunartæki, sturta og handklæðaofn. 
*  Þvottahús í íbúð. 
*  Sér geymsla.
*  Lagnaleið að bílastæðum fyrir hleðslustöðvar. 


Húsið eru staðsteypt fjölbýlishús á tveimur hæðum við miðbæ Þorlákshafnar. Í húsinu eru 6 íbúðir ásamt geymslum.
Lögð er áhersla á að öll umgjörð hverfisins verði hlý og aðlaðandi með lágstemmdri byggð sem skiptist í nokkra kjarna sem tengjast saman með vistgötum.

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !
Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott -  hagnýtar upplýsingar:


Við Þorlákshöfn er rómaður golfvöllur sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna!
Hér eru einstaklega góður grunn- og leikskóli þar sem tekin eru inn börn niður í 18 mánaða!
Verslun og þjónusta:
Hér má m.a. finna:
VERSLUN KRÓNUNNAR
Apótekarann.
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook:  kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Veitingastaðina:
Thai Sakhon veitingahús (facebook:  Thai Sakhon Restaurant)
Caffe Bristól
Svarta Sauðinn (facebook:  svarti sauðurinn)  og 
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar.    Einnig er ÓB-stöð.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins: 
Mjög gott bókasafn (facebook:  Bæjarbókasafn Ölfuss)
Landsbankinn 
Tómstundir og afþreying: 
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga. Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook:  fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook:  Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton, motorcrossá braut rétt utan við bæinn, hestamennska (facebook:  hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring og golf á rómuðum golfvelli.  Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.   
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl.  Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk.
Jógastúdíó (Jógahornið).
Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna:  
Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. 
Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér.
Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið og jógaferðir úti í náttúrunni.  
Einnig er hér:
Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).
Hinir ýmsu kórar (facebook:  Tónar og Trix, Kyrjukórinn,  ofl.)
Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook:  Kiwanisklúbburinn Ölver)
O.sfr. o.s.frv. o.s.frv.  :)
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á:  www.hafnarfrettir.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2024
5.1 m2
Fasteignanúmer
2530709
Byggingarefni
steypt
Fasteignamat samtals
0 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignasala Suðurlands ehf.
https://www.eignin.is

Svæðisupplýsingar

Sambærilegar eignir

Skoða eignina HNJÚKAMÓI 4 ÍBÚÐ 103
Hnjúkamói 4 Íbúð 103
815 Þorlákshöfn
94.7 m2
Fjölbýlishús
413
631 þ.kr./m2
59.800.000 kr.
Skoða eignina HNJÚKAMÓI 4 ÍBÚÐ 203
Hnjúkamói 4 Íbúð 203
815 Þorlákshöfn
94.7 m2
Fjölbýlishús
413
631 þ.kr./m2
59.800.000 kr.
Skoða eignina Eyravegur 34
Skoða eignina Eyravegur 34
Eyravegur 34
800 Selfoss
93.6 m2
Fjölbýlishús
514
640 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina EDENMÖRK 5
Skoða eignina EDENMÖRK 5
Edenmörk 5
810 Hveragerði
80 m2
Fjölbýlishús
413
723 þ.kr./m2
57.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin