Háborg fasteignasala og Jórunn lögg fasteignasali kynna í einkasölu:Arnarhlíð 1 íbúð 404, við Hlíðarenda. Stórglæsileg enda lúxusíbúð á efstu hæð í fallegu fjöleignar lyftu húsi með útgengt út á tvennar stórar svalir. Eignin skiptist í hol, alrými með eldhúsi, storfu og borðstofu, tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvotthús. Fallegt alrými opið með fallegri eldhús innréttingu með eyju sem hægt er að sitja við. Bjartar rúmgóðar stofur með stórum gólfsíðum gluggum og útgengt á suður útsýnis svalir 21,2 fm. Hjónasvíta rúmgóð og björt með fataherbergi og baðherbergi innaf því að stærð 31,6 fm. Úr hjónasvítu er útgengt út á vestur svalir. Auka herbergi rúmgott og með skápum. Barðherbergi (nr.2) innaf holi, mjög rúmgott með góðri snyrtiaðstöðu. Sér þvottahús innaf eldhúsi, innan íbúðar. Einnig fylgir geymsla í kjallara, sameiginleg hjólageymsla og bílastæði sem er afgirt með hliði. Aldrei bílastæða vandamál hjá eigenum.
Birt stærð eignar er 112,7 fm samkvæmt HMS, þar af er 3,0 fm geymsla. Ath: Suðursvalir stærð 21,2 fm einnig vestur svalir útgengt úr hjónaherbergi stærð 4,9 fm. Einnig er á hverri hæð veislusvalir að stærð 41,5 sem er í sameign hæðar, á svölunum er grill og garðhúsgögn, allt tilbúið fyrir góðar samverustundir. Stílhrein, björt og einstaklega vel skipulögð 112,7 fm þriggja herbergja íbúð í vönduðu lyftuhúsi við Arnarhlíð 1 í Reykjavík. Um er að ræða bjarta endaíbúð með aukinni lofthæð, gólfsíðum gluggum og góðu birtuflæði. Íbúðin er með tvennum svölum, þar af 21,2 fm svalir út frá stofu og 4,9 út úr svefnherbergi. Tvö baðherbergi, þar af hjónasvíta með fataherbergi og sérbaðherbergi.
Húsfélag:Í húsinu er virkt húsfélag, heildarkostnaður á mánuði er kr. 32.873-. Ekki eru fyrirhugaðar eða yfirstandandi framkvæmdir.
Hvað er það sem gerir íbúð að "lúxus" íbúð:- Veislusvalir 41,5 fm í sameign hæðar
- Endaíbúð með útgengt út á svalir (21,2 fm) úr alrými í lyftuhúsi
- Hjónasvíta stærð 31,6 fm, með fataherbergi og góðu barðherbergi, með útgengt á vestur svalir.
- Aukin lofthæð fallegir gólfsíðir gluggarsnyrtiaðstöðu
- Tvö baðherbergi annað í holi, rúmgott og með góðri snyrtiaðstöðu
- Fallega innréttað eldhús með vönduðumtækjum, eyju sem hægt er að sitja við og steyptri borðplötu
- Þvottahús innaf eldhúsi
- Hlið við bílageymslu, ekkert vandamál með bílastæði
- Frábær staðsetning við Hlíðarenda, rúmt um húsið. Eitt af fallegri fjöleignahúsi á R-víkur svæðinu
Húsið:Arnarhlíð 1 er metnaðarfullt fjöleignahús með einu stigahúsið með 40 íbúðum, sem var unnið í samstarfi með Valsmönnum ehf. Alark arkitektar hannaði húsið, var byggt árið 2018, er 4.ra hæða lyftuhús. Húsið er einangrað að utan og klætt með álklæðningu og lerkitimbri á inndregnum svæðum. Markmiðið var að hanna fallegt og lifandi hús sem yrði vísir að því lífi sem mun myndast á Hlíðarendareitnum á næstu árum. Mikið var unnið með að skapa sameiginleg rými fyrir íbúa og ber þar helst að nefna stóra sameiginlega “svalagarða”, þar sem hægt er að leika, njóta og kynnast. Á jarðhæð er atvinnuhúsnæði. Fallegt 4ra hæða fjölbýlishús með einstakri hönnun sem skilur það frá hefðbundnum fjölbýlishúsum á margan hátt.
Sameign:Einstök sameign með fallegum sjónsteyptum veggum. Innfeldar hurðir. Sameiginlegar veislu svalir fyrir hverja hæð sem snúa til vestur, þar geta íbúar setið á góðum degi og grillað, eða kynnst og lifað í góðu samneiti.
Bílastæði:Á lóð eru 45 bílastæði fyrir húsið sem er girt af með hliði þar af eru 3 fyrir fatlaða.
StaðsetningArnarhlíð 1 stendur við Valsreitinn í Reykjavík – í nálægð við íþróttasvæði við Hlíðarenda, skóla, miðbæ og fjölbreytta þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Jórunn lögg. fasteignasali, í síma 845-8958, eða tölvupóstur jorunn@haborg.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.