Fasteignaleitin
Skráð 4. nóv. 2026

Haukahlíð 2 - íbúð 221

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
119.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
117.900.000 kr.
Fermetraverð
984.140 kr./m2
2. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2532616
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Hlíðarhorn.is kynnir Haukahlíð 2, 102 Reykjavík - Íbúð 221. Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin verður afhent fullbúin í desember 2026 með fyrirvara um öryggisúttekt.

S8-Sameign: Verð íbúðar miðað við 25% sameign er 88,425,000. S8 ehf. sem byggingaraðili heldur eftir 25% af íbúðinni í 10 ár skv sameignarsamningi sem er undirritaður samtímis og kaupsamningur. Helstu spurningar og svör hvað varðar sameignarleiðina má finna hér.

Ef þú vilt fræðast meira um eignina og þær lausnir sem eru í boði, sendu fyrirspurn á s8@s8.is eða hlidarhorn@s8.is. Þú getur líka hringt í síma 4152500 og fengið allar upplýsingar frá starfsmönnum S8 ehf, bókað skoðun í Hlíðarhorni og mátað íbúðina.

Á sölusíðu eignarinnar í eCASA færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.

Virðuleg og vönduð 4ja herbergja íbúð á 2. hæð. Íbúðin er gegnumlýst (norður/suður). Birt stærð er 119,8 fm þar af 15 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, gang, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist fullbúin samkvæmt skilalýsingu með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum, gæðaraftækjum, vönduðum blöndunartækjum og sterku og vönduðu gólfefni. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Hlíð 1.

 

Nánari lýsing: Góður skápur í anddyri. Gengið er beint inn í rúmgott og opið alrými, eldhús og stofu/borðstofu, eldhús með eyju og útgengi á suður svalir inn í innri garð. Eldhúsinnrétting með fallegri hnotuáferð, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa og blöndunartæki úr burstuðu kopar/gulllituðu stáli. Innbyggður ísskápur. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Gott svefnherbergi með fataskáp og annað minna einnig með fataskáp. Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, innrétting með hnotuáferð og speglaskápur. Blöndunartæki á baði úr svörtu möttu stáli. Þvottaherbergi er með ljósri innréttingu og leirljósum steinflísum á gólfi. Tengi fyrir vask í þvottaherbergi. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0093 á teikningu. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar hafa forgang á leigu bílastæða.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Á heimasíðu verkefnissins, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni, á þessum frábæra stað í miðbænum.

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu Hlíðarhorns (sjá tengil að ofan), ásamt upplýsingum er varða hönnun og byggingu.

ATH: Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu aðalverktaka og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir í auglýsingu geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (13)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugaborg (404)
Hleðslustöð
Opið hús:05. nóv. kl 17:00-17:30
404.jpg
Skoða eignina Laugaborg (404)
Laugaborg (404)
105 Reykjavík
121,2 m2
Fjölbýlishús
413
1022 þ.kr./m2
123.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 170 íb 303 - Heklureitur
Bílastæði
Opið hús:08. nóv. kl 13:00-14:00
Laugavegur 170 íb 303 - Heklureitur
105 Reykjavík
98 m2
Fjölbýlishús
312
1081 þ.kr./m2
105.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168 - Heklureitur íb 503
Bílastæði
Opið hús:08. nóv. kl 13:00-14:00
Laugavegur 168 - Heklureitur íb 503
105 Reykjavík
112,6 m2
Fjölbýlishús
423
1216 þ.kr./m2
136.900.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 7
Bílastæði
Opið hús:04. nóv. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Bolholt 7
Bolholt 7
105 Reykjavík
131,8 m2
Fjölbýlishús
413
1244 þ.kr./m2
164.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin