ELKA lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna tvær einstakar frístundalóðir í Lögmannshlíð við rætur Hlíðarfjalls, innan bæjarmarka AkureyrarUm er að ræða lóðirnar Fagrilæk, 15.504 fm að stærð, og Fögruvelli, 18.957 fm að stærð. Lóðirnar eru seldar hvor í sínu lagi eða saman fyrir þá sem vilja tryggja sér einstakt landsvæði á þessum eftirsótta stað.
Um er að ræða einstaklega vel staðsettar lóðir þar sem náttúrufegurð, næði og nálægð við þjónustu fara saman á einstakan hátt.
Landið er að hluta skógi vaxið með fjölbreyttum gróðri, klettabeltum og náttúrulegu skjóli sem skapar rólegt og friðsælt umhverfi. Af lóðunum er stórkostlegt útsýni til fjalla allt um kring og út Eyjafjörð. Lækur rennur meðfram landamerkjum í suðri og austri sem eykur enn frekar á sérstöðu svæðisins.
Lóðirnar eru innan bæjarmarka Akureyrarkaupstaðar. Þrátt fyrir einstaka náttúruupplifun er aðeins um fimm mínútna akstur í miðbæ Akureyrar þar sem öll helsta þjónusta er innan seilingar.
Samkvæmt deiliskipulagsbreytingu er heimilt að reisa eitt frístundahús á hvorri lóð, allt að 250 fm að stærð á einni til tveimur hæðum. Þakform er frjálst og hámarkshæð byggingar er 6 metrar. Byggingarreitir eru rúmgóðir og staðsetning húss innan þeirra er frjáls, sem veitir kaupendum mikið svigrúm við hönnun og útfærslu framtíðarhúss.
Fagrilækur – 15.504 fm frístundalóð: Verð 28.000.000 kr.
Fögruvellir – 18.957 fm frístundalóð: Verð 24.000.000 kr.
Hægt er að kaupa lóðirnar saman á 50.000.000 kr.
Lóðirnar eru til sölu hvor í sínu lagi eða saman.
Heimilt að byggja allt að 250 fm frístundahús á hvorri lóð á 1-2 hæðum.
Aðkoma frá Lögmannshlíðarvegi.
Gert ráð fyrir hreinsivirki og fráveitu innan lóðar samkvæmt gildandi reglum.
Stutt í Hlíðarfjall, útivistarsvæði, golfvelli og alla helstu þjónustu Akureyrar.
Þetta er einstakt tækifæri fyrir þá sem vilja byggja sér sumarhús eða athvarf í fallegu náttúruumhverfi með stórbrotnu útsýni, friðsæld og næði, án þess að fórna nálægð við þægindi og þjónustu bæjarins.
Athugið: Lóðirnar eru seldar í núverandi ástandi. Kaupandi sér um lagningu vegar að lóð og greiðslu tengi- og inntaksgjalda samkvæmt gjaldskrám viðeigandi veitustofnana.
Athygli er vakin á því að lóðirnar hafa ekki enn verið formlega stofnaðar sem sjálfstæðar fasteignir, en stofnun þeirra er í ferli samkvæmt deiliskipulagsbreytingu sem liggur fyrir.
Smellið hér fyrir staðsetninguAllar nánari upplýsingar veitir Elka í síma 863-8813 eða á netfangið elka@fstorg.is