Jason Kristinn s. 7751515 á Betri Stofunni og Safír byggingar ehf kynna með stolti
Orkureitinn. Glæsilegar nýjar íbúðir í öðrum áfanga (D-húsi) á Orkureitnum við
Suðurlandsbraut 38-44 og Grensásveg 2-6. Glæsilegt lyftuhús, sannkallaður sælureitur við Laugardalinn. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með vönduðum Nobilia Innréttingum frá GKS, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna.
Rut Kára stýrir innanhússhönnun og er sérstök áhersla lögð á gott flæði dagsbirtu.
Svansvottaðar íbúðir.
Heimasíða OrkureitsinsOrkureitur - Grensásvegur 2,
íbúð 510 er 3ja-4ra herbergja 126,5 fm
með sérmerktu stæði B040. Íbúðin er á horni Suðurlandsbrautar og Grensásvegar og er á 5. hæðinni með fallegu útsýni.
Flæði íbúðar:Komið inní
anddyri með mjög rúmgóðum fataskápum.
Baðherbergi með sturtu. Rennihurð úr baðherbergi í þvottarými.
Hjónasvíta með sér baðherbergi og fataskápum sem eru 3 metrar að breidd.
Svefnherbergi II er 8,6 fm að innra máli og er með einföldum fataskáp.
Eldhúsið er með stein á borðplötum. Glæsileg innrétting frá GKS með eyju. Safír Harmónía /útg 4.
Alrýmið er með gluggum að mestu til norðurs og frábæru útsýni, að auki eru gluggar til austurs og þaðan er hægt að ganga út á svalir sem eru rúmlega 7 fm að stærð. Auðveldlega er hægt að útbúa 3ja svefnherbergið á kostnað sjónvarpshols sem er í enda stofu. Gólfsíðir gluggar og gólfhit ásamt loftskiptakerfi gefa aukin gæði.
Sérgeymsla er 10,2 fm.
Innréttingaþema er Safír Harmonía. Steinn á borðum. Vönduð eldhústæki frá Siemens, Elica og Bora.
Nánar um Orkureitinn: Bjartar og vel hannaðar íbúðir. Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði.
Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Fyrsta áfanga (A-húsi) er lokið en áformað er að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027.
Nánari upplýsingar veita sérfræðingar Betri Stofunnar:
Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1515 - tölvupóstur: jason@betristofan.is
Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021 - tölvupóstur: hreidar@betristofan.is