Fasteignaleitin
Skráð 12. maí 2026

Þorrasalir 13

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
125.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
115.000.000 kr.
Fermetraverð
914.149 kr./m2
Fasteignamat
96.300.000 kr.
Brunabótamat
72.410.000 kr.
Garður
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
2349601
Landnúmer
207977
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
7
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Í lagi
Raflagnir
Í lagi
Frárennslislagnir
Í lagi
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
svalir með glerlokun
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur

Þorrasalir 13 – sérinngangur, stórar yfirbyggðar svalir og einstakt útsýni. 
Garðatorg eignamiðlun. Sölumaður: Sigurður Tyrfingsson s. 898 3708 kynnir afar vandaða, stílhreina og vel skipulagða 125,8 fm útsýnisíbúð á 2. hæð við Þorrasala 13 í Kópavogur. Íbúðin er skráð 4ra herbergja en nýtist í dag sem rúmgóð og opin 3ja herbergja þar sem eitt herbergi hefur verið opnað og myndar fallegt sjónvarpsrými, auðvelt að breyta aftur í lokað herbergi.
Sérinngangur er í íbúðina með beinni innkomu af opnum gangi, ekki gengið um stigahús, sem eykur næði og þægindi.
Eignin er einstaklega björt með stórum gluggum og nýtur óskerts suð og suðvestur útsýnis yfir golfvöll GKG, Vífilsstaði og Heiðmörk. Útsýnið er eitt af helstu sérkennum eignarinnar.
Frá stofu er gengið út á rúmgóðar stórar yfirbyggðar svalir (18,7 fm) með tvöföldu einangrunargleri sem nýtast allt árið um kring, raunveruleg framlenging á stofurýminu.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi í opnu og björtu rými með fallegum gólfefnum sem gefa íbúðinni hreint og vandað yfirbragð.
Eldhúsið er mjög snyrtilegt og vel skipulagt með hvítsprautulakkaðri innréttingu, steinborðplötum, vönduð tæki, tvöfaldur ísskápur. Gott vinnupláss og mjög góð tenging við stofurými.
Svefnherbergin eru rúmgóð með góðum skápum. Opna rýmið sem áður var herbergi nýtist vel sem sjónvarpsrými.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með stórri sturtu, innréttingu, glugga og gólfhita.
Sér þvottahús er innan íbúðar. 
Sér bílastæði í bílageymslu með rafhleðslustöð sem fylgir eigninni.
Í sameign er sérgeymsla ásamt hjóla- og vagnageymslu.
Staðsetning er frábær í Salahverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, verslun og útivist.
Mjög vönduð eign með sérinngangi, stórum svölum og útsýni sem setur hana í sérflokk.

Upplýsingar veitir
Sigurður Tyrfingsson
Löggiltur fasteignasali og húsasmíðameistari
Sími: 898-3708
Netfang: sigurdur@gardatorg.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Garðatorg eignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
04/05/201641.850.000 kr.43.900.000 kr.125.8 m2348.966 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2015
Fasteignanúmer
2349601
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B
Númer eignar
34
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.160.000 kr.

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Friggjarbrunnur 53
Friggjarbrunnur 53
113 Reykjavík
71.6 m2
Fjölbýlishús
312
906 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 56 (502)
áshamar jpg.jpg
Áshamar 56 (502)
221 Hafnarfjörður
129.5 m2
Fjölbýlishús
313
761 þ.kr./m2
98.500.000 kr.
Skoða eignina Maríubakki 28
Skoða eignina Maríubakki 28
Maríubakki 28
109 Reykjavík
75.5 m2
Fjölbýlishús
312
714 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 56 (109)
NorthWestView.jpg
Áshamar 56 (109)
221 Hafnarfjörður
104.5 m2
Fjölbýlishús
313
746 þ.kr./m2
78.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin