Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 kynnir nýtt í einkasölu: Nýlegt fallegt og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð í eldri hluta bæjarins. Eignin telur forstofu, rúmgott og bjart stofurými, hjónasvítu með sér baðherbergi og fataherbergi, tvö góð barnaherbergi, flott baðherbergi, sér þvottahús og bílskúr með geymslulofti. Byggingarár hússins er skráð 2024. Sjá hér myndband af eigninniNánari lýsing:Forstofa með stórum skápum og parketi á gólfi.
Hol / stofa og borðstofa mynda saman bjart og fallegt alrými með parketi á gólfi og útgengi út á lóð.
Eldhús opið við stofurými, þar er stór hvít innrétting með eyju, miklu skápaplássi og vönduðum tækjum.
Hjónasvíta með sér fataherbergi og fallegu baðherbergi með hvítri innréttingu og einhalla sturtu.
Barnaherbergi eru rúmgóð með parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með góðri innréttingu og stórri sturtu með gleri.
Þvottahús flísalagt með stórri innréttingu, tæki í vinnuhæð.
Bílskúr fínn bílskúr, innangengt úr þvottahúsi, bílskúrshurðaropnari og geymsluloft.
Húsið er innréttað á fallegan máta, innréttingar og hurðir eru hvítar. Gólfhiti í öllum rýmum og innfelld lýsing í flestum rýmum.
Lóðin þökulögð og innkeyrsla malarborin.
Þetta er nýlegt og fallegt einbýlishús sem vert er að skoða.
Allar nánari upplýsingar veitir Atli S. Sigvarðsson fasteignasali í síma 899-1178 eða atli@betristofan.is