Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Dalsbraut 16, 260 Reykjanesbæ.
Íbúð 201.Um er að ræða fallega 4ja herbergja, 89,9 fm. íbúð á 2. hæð í tveggja hæða fjölbýlishúsi með sérinngangi.
Eignin skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, stofu, borðstofu og eldhúsi í opnu björtu rými, baðherbergi þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara, svalir, merkt bílastæði og sérgeymslu á fyrstu hæð auk vagna- og hjólageymslu í sameign.
Nánari lýsing:Snyrtileg aðkoma er að húsinu, innkeyrsla og
sérmerkt bílastæði eru malbikuð,
Anddyri er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús hefur fallega dökka innréttingu, góð heimilistæki, harðparket er á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í opnu björtu rými með harðparketi á gólfi. Þar er útgengt gegnum rennihurð út á svalir.
Svefnherbergin eru þrjú talsins með harðparketi á gólfi.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum, snyrtileg innrétting, upphengt salerni, sturta og góð innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Sérgeymsla er á fyrstu hæð.
Hjóla og vagnageymsla er í sameign.
Mjög falleg og björt íbúð. Frábær staðsetning, við hliðina á nýjum leikskóla og grunnskóla, þar verður einnig almennings sundlaug og íþróttahús. Stutt í fallegar gönguleiðir. Samgöngur til og frá svæðinu eru auðveldar og stutt uppá Reykjanesbraut.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50 eða á netfanginu es@es.is og í síma 420-4050
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 70.000 með vsk.