Um er að ræða gróðrarstöð ásamt íbúðarhúsi og starfsmannahúsi í Laugarási í Bláskógabyggð. Eignirnar standa á þremur aðskildum lóðum, samtals um 16.700 m² að stærð.
Gróðrarstöðin stendur á um 9.300 m² leigulóð, íbúðarhúsið á 6.400 m² leigulóð og starfsmannahúsið á 1.000 m² lóð sem er leigulóð og er skráð er sem viðskipta- og þjónustulóð.
Gróðrarstöð Gróðrarstöðin samanstendur af sex gróðurhúsum, geymslu- og pökkunarhúsi ásamt véla- og verkfærageymslu. Gróðurhúsin eru samtals um 2.337 m² að stærð og voru byggð á tímabilinu frá 1973 til 2000. Lýsing er í hluta gróðurhúsanna, um 100–160 W/m², og vökvunarkerfi er í húsunum. Sjálfvirk rafmagnsopnun er á kili húsanna og myrkvunargardínur eru í hluta þeirra. Gróðurhúsin eru komin að viðhaldi. Í geymslu- og pökkunarhúsi er meðal annars eiturefnageymsla, kaffistofa og hluti pökkunaraðstöðu. Véla- og verkfærageymslan er stálgrindarhús sem er einangrað, klætt og upphitað.
Hitaveita er á svæðinu og hefur gróðrarstöðin til afnota 2,5 l/sek. af 90°C heitu vatni frá Bláskógaveitu.
Lóðin er vel gróin með háum trjám. Lóðarleigusamningur var endurnýjaður árið 2008 til 50 ára.
Íbúðarhús Íbúðarhúsið er 164,4 m² einbýlishús, byggt úr timbri árið 1960. Húsið er klætt að utan með liggjandi timburklæðningu og bárujárn er á þaki. Þakjárnið er að hluta til upprunalegt. Húsið stendur á steyptum sökkli. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi, eldhús, hol, stofa, lítil snyrting, búr, forstofa og þvottahús. Veggir eru forskalaðir timburveggir. Parket er á gólfum í stofu, eldhúsi, holi og herbergjum en flísar á baðherbergi. Húsið er að hluta einangrað með vikri. Í eldhúsi er eikarspónlögð fulningainnrétting. Útgengt er úr einu herbergi út á lóð. Gólf í stofu er talsvert sigið og gluggar eru lélegir. Ekki var komið fyrir púða undir húsinu við byggingu þess né framkvæmd jarðvegsskipti. Lóðin er vel gróin með háum trjám. Lóðarleigusamningur var endurnýjaður árið 2008 til 50 ára.
Starfsmannahús – Laugarás, Starfsmannahúsið stendur á sérstakri 1.000 m² lóð, aðskildri frá lóðum gróðrarstöðvarinnar og íbúðarhússins. Húsið er 90 m² að stærð og byggt úr timbri árið 1975. Það er klætt að utan með krossviði og bárujárn er á þaki. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi, snyrting, baðherbergi, eldhús og stofa. Húsið er komið til ára sinna og þarfnast viðhalds. Gólf er sigið og komið er að viðhaldi á þakjárni og utanhússklæðningu.
2,626.5 m2
9 Herb.
8 Svefnh.
Garður
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2205117
Landnúmer
167167
Húsgerð
Jörð/Lóð
Númer hæðar
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
Vatnslagnir
Upphaflegt
Raflagnir
Upphaflegt
Frárennslislagnir
Upphaflegt
Gluggar / Gler
Upphaflegt
Þak
Upphaflegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Sólveigarstaðir, Bláskógabyggð
Um er að ræða gróðrarstöð ásamt íbúðarhúsi og starfsmannahúsi í Laugarási í Bláskógabyggð. Eignirnar standa á þremur aðskildum lóðum, samtals um 16.700 m² að stærð.
Gróðrarstöðin stendur á um 9.300 m² leigulóð, íbúðarhúsið á 6.400 m² leigulóð og starfsmannahúsið á 1.000 m² lóð sem er leigulóð og er skráð er sem viðskipta- og þjónustulóð.
Gróðrarstöð Gróðrarstöðin samanstendur af sex gróðurhúsum, geymslu- og pökkunarhúsi ásamt véla- og verkfærageymslu. Gróðurhúsin eru samtals um 2.337 m² að stærð og voru byggð á tímabilinu frá 1973 til 2000. Lýsing er í hluta gróðurhúsanna, um 100–160 W/m², og vökvunarkerfi er í húsunum. Sjálfvirk rafmagnsopnun er á kili húsanna og myrkvunargardínur eru í hluta þeirra. Gróðurhúsin eru komin að viðhaldi. Í geymslu- og pökkunarhúsi er meðal annars eiturefnageymsla, kaffistofa og hluti pökkunaraðstöðu. Véla- og verkfærageymslan er stálgrindarhús sem er einangrað, klætt og upphitað.
Hitaveita er á svæðinu og hefur gróðrarstöðin til afnota 2,5 l/sek. af 90°C heitu vatni frá Bláskógaveitu.
Lóðin er vel gróin með háum trjám. Lóðarleigusamningur var endurnýjaður árið 2008 til 50 ára.
Íbúðarhús Íbúðarhúsið er 164,4 m² einbýlishús, byggt úr timbri árið 1960. Húsið er klætt að utan með liggjandi timburklæðningu og bárujárn er á þaki. Þakjárnið er að hluta til upprunalegt. Húsið stendur á steyptum sökkli. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi, eldhús, hol, stofa, lítil snyrting, búr, forstofa og þvottahús. Veggir eru forskalaðir timburveggir. Parket er á gólfum í stofu, eldhúsi, holi og herbergjum en flísar á baðherbergi. Húsið er að hluta einangrað með vikri. Í eldhúsi er eikarspónlögð fulningainnrétting. Útgengt er úr einu herbergi út á lóð. Gólf í stofu er talsvert sigið og gluggar eru lélegir. Ekki var komið fyrir púða undir húsinu við byggingu þess né framkvæmd jarðvegsskipti. Lóðin er vel gróin með háum trjám. Lóðarleigusamningur var endurnýjaður árið 2008 til 50 ára.
Starfsmannahús – Laugarás, Starfsmannahúsið stendur á sérstakri 1.000 m² lóð, aðskildri frá lóðum gróðrarstöðvarinnar og íbúðarhússins. Húsið er 90 m² að stærð og byggt úr timbri árið 1975. Það er klætt að utan með krossviði og bárujárn er á þaki. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi, snyrting, baðherbergi, eldhús og stofa. Húsið er komið til ára sinna og þarfnast viðhalds. Gólf er sigið og komið er að viðhaldi á þakjárni og utanhússklæðningu.
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.