Fasteignaleitin
Skráð 30. ágúst 2024
Deila eign
Deila

Engjaland 2 íb. 101

Nýbygging • FjölbýlishúsSuðurland/Selfoss-800
127.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
98.000.000 kr.
Fermetraverð
769.231 kr./m2
Fasteignamat
4.050.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Steindór Guðmundsson
Steindór Guðmundsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2024
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sérinng.
55 ára og eldri
Fasteignanúmer
2515584
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
St+málmur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Ál/tré nýtt
Þak
Ábræddur tjörudúkur nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Svalir með svalalokun
Lóð
6,08
Upphitun
Sameiginlegur hiti ofnakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
3 - Risin bygging
Hús fasteignasala kynna í einkasölu glæsilega nýja, 127,4 fm,  þriggja herbergja endaíbúð á jarðhæð að Engjalandi 2, Selfoss, nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt bílastæði í bílakjallara B4.  Eignin er sérlega vönduð nýbygging fyrir 55 ára og eldri.  Íbúðin afhendist fullbúin með gólfefnum.  Eignin verður tilbúin til afhendingar í byrjun nóvember 2024. 

Nánari upplýsingar, skilalýsingar og þrívíddarteikningar er hægt að nálgast hér:https://vefir.onno.is/golverk/engjaland-2/

Lýsing íbúðar:
Íbúðin  0101 er 120,0 fm á jarðhæð og geymsla 0007 er 7,4 fm í kjallara auk bílastæðis í bílakjallara merkt B4.
Gengið er inn í íbúðina af lokuðum svalagangi í gegnum stigahús. Rafmagnsopnun á útihurðum í sameign.   Myndavélasími er í anddyri. 
Forstofa: Með skápum.
Gestasnyrting: Með upphengdu salerni og vaski. 
Hjónaherbergi: Með skápum sem ná upp í loft.
Baðherbergi:  Er innaf hjónaherbergi. Þar er sturta með þreplausu aðgengi og innbyggðum tækjum. Innrétting er á baði og upphengt salerni.
Svefnherbergi: Með skápum sem ná upp í loft
Eldhús og borðstofa:  Vönduð innrétting með eyju.  Innfeld uppþvottavél og ísskápur.  Innbyggður blástursofn og spanhelluborð með innbyggðri viftu. Vönduð tæki, Miele og Elica frá Eirvík.  Borðplata úr steini. Úr borðstofu er  útgengi um rennihurð út á verönd.
Stofan: Er björt og rúmgóð
Verönd: Með svalalokun.  Verönd er 13,5fm
Þvottahús: Með innréttingu m.a. fyrir þvottavél og þurrkara.
Gólf votrýma eru flísalögð sem og veggir baðherbergja. Önnur gólf eru með harðparketi. 

Sérbílastæði í upphituðum bílakjallara.  Lagt er fyrir hleðslustöð. 

Almenn lýsing hússins:
Engjaland 2 er 14 íbúða fjölbýlishús á 4 hæðum ásamt bílakjallara. Húsið er fyrir 55 ára og eldri.

Í kjallara hússins eru séreignageymslur, inntaksrými, svæði fyrir hjólageymslu auk bílgeymslu fyrir þær íbúðir sem hafa aðgang að þeim en 10 rúmgóð bílastæði eru í bílgeymslu hússins. Á jarðhæð eru sorpgeymslur og anddyri í stigahúsi fyrir íbúðir. Aðgengi að öllum íbúðum er í gegnum stigahús á jarðhæð.

Í anddyri eru póstkassar fyrir allar íbúðir ásamt myndavélasíma sem er tengdur í allar íbúðir. Á 1-3 hæð eru alls fjórar íbúðir á hverri hæð sem allar eru útbúnar svölum með svalalokun.  Á gönguhurðum í sameign eru sjálfvirk hurðaropnun á rofa.

Íbúðum er skilað fullbúnum með gólfefnum á öllum rýmum. Gólf votrýma eru flísalögð og veggir baðherbergja eru flísalagðir. Önnur gólf innan íbúða eru með harðparketi.. Íbúðirnar afhendast með vönduðum eldhústækjum frá Eirvík, blástursofni, spanhelluborði með innbyggðri viftu, innbyggðri uppþvottavél og innbyggðum kæli- og frystiskáp. Baðherbergi eru með þreplausu sturtuaðgengi og eru sturtutæki innbyggð hitastýrð blöndunartæki. Sér loftræsikerfi með varmaupphitun og inn- og útblæstri er í hverri íbúð. Að vera með sér loftræsikerfi skapar jafnara loftflæði um íbúðina, minnkar rakasöfnun og myndar betri loftgæði. Aukin lofthæð er í öllum íbúðunum.

Svalir
Svalir eru afhentar með steyptu yfirborði og svalalokun á 1-3 hæð en með svalahandriðum á 4 hæð

Byggingaraðili er Gól ehf. Kt: 430502-5060 
Aðalhönnuður er Pro-Ark ehf.

Frágangur utanhúss
Húsið er uppsteypt, einangrað að utan og klætt með loftræstri flísaklæðningu í ljósum lit. Stigahús er klætt með álklæðningu í dökkum lit. Aðkoma að íbúðum er um svalagang sem er skermdur af með glervegg með opnunum samkvæmt útfærslu brunahönnuðar. Svalir íbúða 1,2 og 3 hæðar eru lokaðar af með svalalokun. Svalir 4.hæðar eru með handriði. Gluggar eru timburgluggar með álkápu að utanverðu Ideal Combi. Rennihurðar eru út á svalir allra íbúða og eru úr áli frá Reyners. Útihurðir með rafdrifinni opnun eru úr áli. Þakefni er ábræddur tjörudúkur.

Sameign.
Í stigahúsi er lyfta sem gengur frá kjallara upp á allar hæðir. Stigahús er hvítmálað með teppum á stigum en flísalagt á stigapöllum framan við lyftur og innganga. Á öllum inn- og útgangshurðum í stigahúsi er rafdrifin hurðaropnum. Í andyri á 1 hæð eru póstkassar fyrir allar íbúðir auk dyrasíma með myndavél tengdum öllum íbúðum.

Í kjallara er upphituð bílageymsla fyrir hluta íbúða þar sem bílastæði eru rýmri en venja er. Í kjallara eru einnig tæknirými og geymsla fyrir allar íbúðir. Geymslur og geymslugangar skilast með máluðum veggjum, loftum og gólfum auk lýsingar í hverri geymslu. Geymslur eru loftræstar með sameiginlegri loftræsisamstæðu og er innblástur með varmaupphitun.

Við hvert bílastæði er lagt fyrir hleðslustöð. (Hleðslustöðin sjálf fylgir ekki) Afmarkað svæði er í geymslu/bílgeymslu fyrir hjól.

Lóð
Lóð afhendist fullfrágengin. Bílastæði eru malbikuð og garður með grasi. Gangstígar framan við hús eru steyptir með kústaðri áferð. Snjóbræðsla er í rampi, bílastæðum hreyfihamlaðra og göngustígum framan við hús.

Kaupandi hefur kynnt sér skilalýsingu seljanda. 

Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar komið er er brunabótamat á eignina. 

Skilalýsing og nánari upplýsingar hjá fasteignasölum:
Steindór Guðmundsson, í s 8621996, steindor@husfasteign.is
Snorri Sigurfinnsson s. 8648090, snorri@husfasteign.is
Hafsteinn Þorvaldsson s. 8918891, hafsteinn@husfasteign.is
Loftur Erlingsson s. 8969565, loftur@husfasteign.is
Ragna Valdís Sigurjónsdóttir s.846 6581, ragna@husfasteign.is
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
2515584
Byggingarefni
St+málmur
Númer hæðar
B0
Númer eignar
4
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
3 - Risin bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eyrarlækur 8
Bílskúr
Skoða eignina Eyrarlækur 8
Eyrarlækur 8
800 Selfoss
166.3 m2
Parhús
413
571 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Engjaland 4
Bílastæði
55 ára og eldri
Skoða eignina Engjaland 4
Engjaland 4
800 Selfoss
116 m2
Fjölbýlishús
312
816 þ.kr./m2
94.600.000 kr.
Skoða eignina Engjaland 4
Bílastæði
55 ára og eldri
Opið hús:22. sept. kl 13:00-14:00
Skoða eignina Engjaland 4
Engjaland 4
800 Selfoss
119.3 m2
Fjölbýlishús
312
786 þ.kr./m2
93.800.000 kr.
Skoða eignina Engjaland 4
Bílastæði
55 ára og eldri
Opið hús:22. sept. kl 13:00-14:00
Skoða eignina Engjaland 4
Engjaland 4
800 Selfoss
128 m2
Fjölbýlishús
312
797 þ.kr./m2
102.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin