Fasteignaleitin
Opið hús:17. nóv. kl 17:15-17:45
Skráð 11. nóv. 2026

Daggarvellir 4B

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
89.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
68.900.000 kr.
Fermetraverð
770.694 kr./m2
Brunabótamat
57.430.000 kr.
Byggt 2005
2. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
22687001
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Aldir Fasteignir og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@aldirfasteignir.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:

Um er að ræða 4ra herbergja íbúð á 2. hæð ásamt stæði í bílageymlsu við Daggarvelli 4B í Hafnarfirði. Íbúðin er með sérinngangi af svölum. Samkvæmt skráningun HMS er eignin skráð 89,4 fm, þar af er íbúðarrýmið 84,5 fm og sérgeymsla 4,9 fm. Íbúðin er skráð skv teikningum 3ja herbergja en það er einnig geymsla í íbúðinni sem er nýtt sem þriðja svefnherbergið (hefur alla tíð verið gert). Íbúðinni fylgir einnig 4,9 fm sérgeymsla í sameign. Myndadyrasími - granít á sólbekkjum og í eldhúsi - uppþvottavél í eldhúsi fylgir með í kaupum þessum ásamt öllum ljósum - íbúðin er laus til afhendingar.

Birt stærð skv. HMS: Íbúð er 84,5 fm merkt 02-04 og geymslan er 4,9 fm merkt: 00-01, samtals 89,4 fm að stærð. Eigninni fylgir einnig stæði í bílageymslu merkt: 01-B12.  
 
Nánari lýsing eignar: Komið er inn í forstofu með fataskáp og innaf forstofunni er herbergi (skráð geymsla skv. teikningu). Frá forstofu tekur við parketlagður gangur. Á vinstri hönd frá forstofu er svefnherbergi með fataskáp. Flíslagt baðherbergi í hólf og gólf, innrétting, baðkar með sturtu, upphengt salerni og handklæðaofn. Þvottahús með innréttingu og flísum á gólfi. Eldhús og stofa í opnu rými. Falleg innrétting í eldhúsi sem nær alveg upp í loft, mósaík flísar á milli efri og neðri skápa, granít í borðplötum. Frá stofu er gengið út á flísalagðar svalir. Þriðja svefnherbergið er rúmgott með fataskáp. Gólfefni íbúðar: parket og flísar á gólfum. Eigninni fylgir 4,9 fm sérgeymsla í sameign ásamt stæði í lokuðum bílakjallara. Íbúðinni fylgir aðgangur að sameiginlegri hjóla- og vagnageymsla í sameign. 
 
Vel staðsett eign í Vallarhverfinu. Stutt í þjónustu, skóla, leikskóla, leikvöll, sund, íþróttamiðstöðina við Ásvelli, og almenningssamgöngur. 

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@aldirfasteignir.is
 

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringhamar 35 (207)
IMG_9160.jpg
Hringhamar 35 (207)
221 Hafnarfjörður
98,5 m2
Fjölbýlishús
413
817 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Skoða eignina Hvammabraut 12
Skoða eignina Hvammabraut 12
Hvammabraut 12
220 Hafnarfjörður
64,6 m2
Fjölbýlishús
211
726 þ.kr./m2
46.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 7D íb. 203
Efsta hæð
Opið hús:15. nóv. kl 15:00-15:30
Eskiás 7D íb. 203
210 Garðabær
100,1 m2
Fjölbýlishús
514
968 þ.kr./m2
96.900.000 kr.
Skoða eignina Ögurás 7
Efsta hæð
Hleðslustöð
Opið hús:16. nóv. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Ögurás 7
Ögurás 7
210 Garðabær
113,1 m2
Fjölbýlishús
413
927 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin