Karlsbraut 20 Dalvík - Vel skipulögð 3ja herbergja efri hæð í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr og 50% hlutdeild í gróðurhúsi - Heildarstærð 145,9 m²
Frekar upplýsingar veitir Sigurður H. Þrastarson, siggithrastar@kaupa.is, 888-6661.Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi.
Forstofa er með flísum á gólfi. Teppalagður steyptur stigi er upp í íbúðina.
Eldhús, innrétting með flísum á milli skápa og á bekkplötu. Ágætur borðkrókur með glugga til vesturs. Gólf er með ljósum flísum.
Gangur er með parketi á gólfi og tveimur skápum. Við endan á ganginum er gengið út á steyptar og flísalagðar suðvestur svalir.
Stofan er með parketi á gólfi og gluggum til tveggja átta.
Svefnherbergin eru tvö, bæði ágætlega rúmgóð ogmeð parketi á gólfi. Í hjónaherbergi eru hvítir fataskápar.
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir, handlaug og efri skápur, wc, handklæðaofn, hornbaðkar með sturtutækjum og opnanlegur gluggi. Lúga er í loftinu upp á loftið.
Bílskúrinn er skráður 40,2 m² að stærð og er með lökkuðu gólfi. Rafdrifin innkeyrsluhurð og tvær gönguhurðar. Aðstaða er í bílskúrnum fyrir þvottavél.
Hitalagnir eru í bílaplani, kynntar með affalli af húsi.
Á baklóðinni er
gróðurhús með steyptu gólfi sem eignin á 50% hlutdeild í.
Annað- Þak var yfirfarið og málað fyrir um 5 árum.
- Steypt loftaplata.
- Eignin er í einkasölu
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi eignar er dánarbú og þ.a.l. getur seljandi ekki uppfyllt upplýsinga skyldu sína samkvæmt lögum 40/2002 um almennt ástand og ábyrgðaryfirlýsingu eignar. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.