Trausti fasteignasala, Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali og Auðun Ólafsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu einstaklega fallega og vandaða þriggja herbergja íbúð auk bílastæðis í bílakjallara í nýlegu lyftuhúsi byggt 2020 á frábærum stað við Elliðabraut í Norðlingaholti. Húsin eru álklædd og allar íbúðir með sjálfstæðri loftræstingu. Norðlingaholt er eitt eftirsóttasta hverfi borgarinnar í góðri tengingu við náttúruna, verslanir, þjónustu og stofnbrautir.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 78,0 fm. og þar af er geymsla 7,2 fm. Bílastæði í bílakjallara er ekki inn í fermetratölu eignarinnar.
Nánar um eignina: Forstofa með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. Eldhús með nýlegri sérsmíðaðri innréttingu frá Axis, innbyggð uppþvottavél, helluborð, ofn í vinnuhæð og parket á gólfi. Eldhús er opið við stofu. Stofa og borðstofa opin og björt með parketi á gólfi. Útgengt er út á stórar svalir úr stofunni og eldhúsi. Hjónaherbergi rúmgott með góðum fataskáp. Parket á gólfi. Barnaherbergi rúmgott með fataskáp og parket á gólfi. Gangur með innbyggðri lýsingu og parketi á gólfi. Baðherbergi með nýlegri sérsmíðaðri innréttingu frá Axis, innangengri sturtu, upphengt salerni og flísalagt í hólf og gólf. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara í baðherbergi. Bílastæði í bílakjallara fylgir eigninni og er rafmagnstengi fyrir hleðslustöð til staðar. Geymsla íbúðar er í kjallara hússins skráð 7,2 fm. Hjóla- og vagnageymsla er í sameign
Um er að ræða vandaða og bjarta íbúð þar sem mikið er lagt upp úr hljóðvist, loftgæðum og útsýni. Sameignin er rúmgóð og björt.
Loftgæði-Nýjung Sérstakt loftræstikerfi er fyrir hverja íbúð. Kerfið hefur loftskipti í íbúðinni með því að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu, og soga lofti út úr baði, þvottahúsi og eldhúsi. Kerfið er með varmaendurvinnslu og nýtir við bestu aðstæður 80% af varmanum. Kerfið er með loftsíum og er allt loft sem kemur inn síað. Ekki á að vera þörf á að opna glugga í íbúðinni til loftunar.
Byggingaraðili og aðalverktaki er MótX (www.motx.is). Húsið var byggt árið 2020.
Allar nánari upplýsingar veita Hallgrímur Hólmsteinsson, löggiltur fasteignasali, í síma 896-6020 eða á netfanginu hallgrimur@trausti.is og Auðun Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 894-1976 eða á netfanginu audun@trausti.is.

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
26/11/2020
3.120.000 kr.
46.900.000 kr.
78 m2
601.282 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.