Fasteignaleitin
Skráð 6. mars 2024

Hringhamar 35, íb. 206 Hlutd.lán

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
109.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
80.500.000 kr.
Fermetraverð
733.820 kr./m2
Lára Þyri Eggertsdóttir
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2528615_19
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
06
Vatnslagnir
Nýtt 2023
Raflagnir
Nýtt 2023
Frárennslislagnir
Nýtt 2023
Gluggar / Gler
Nýtt 2023
Þak
Nýtt 2023
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Austur
Lóð
2,05
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
BÓKIÐ EINKASKOÐUN Í SÍMA 899-3335 EÐA LARA@FASTLIND.IS, ALLAR ÍBÚÐIR.
**AFHENDING VIÐ KAUPSAMNING, FULLBÚIN MEÐ GÓLFEFNUM** LIND fasteignasala kynnir nýjar og glæsilegar íbúðir í fimm hæða húsi við Hringhamar 35 í nýju hverfi í Hamranesi í Hafnarfirði. Flestum íbúðum fylgir stæði í bílageymslu. Vandaðar, sérsmíðaðar innréttingar frá Bræðrunum Ormsson, tæki frá AEG. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Myndavéladyrasími í öllum íbúðum. Íbúðirnar afhendast fullbúnar með gólfefnum. Húsið er steinsteypt, einangrað að utan og klætt með álklæðningu. Allir gluggar eru timbur-álgluggar frá Byko. Glæsilegar íbúðir í nýju hverfi í Hafnarfirðinum þaðan sem skólar og leikskólar eru í göngufæri og stutt er í alla helstu þjónustu. Fallegar gönguleiðir allt í kring.

Allir kaupendur og seljendur hjá LIND fasteignasölu fá Vildarkort Lindar sem veitir 30% afslátt hjá fjölmörgum fyrirtækjum.

NÁNARI UPPLÝSINGAR UM ALLAR ÍBÚÐIRNAR HJÁ:
Láru Þyri, löggiltum fasteignasala í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is


SJÁ UPPLÝSINGAVEF FYRIR HRINGHAMAR 35-37 HÉR.

Íbúð 206:
Fjögurra til fimm herbergja íbúð á 2. hæð með austursvölum. Íbúðin afhendist fullbúin með gólfefnum, ísskáp og uppþvottavél.

Stærð: 109,7 fm, þar af geymsla 10,9 fm.
Stæði í bílageymslu merkt B-06 fylgir eigninni.

Forstofa:
Parket á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Parket á gólfi, vönduð, dökk innrétting frá Arens með eldunareyju og háf, ljúflokubúnaður á skúffum og skápum, innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél, opnanlegur gluggi.
Stofa: Parket á gólfi. Eldhús og stofa eru í opnu rými. Útgengi úr stofu á austursvalir (7,4 fm).
Þrjú svefnherbergi, öll með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja, upphengt salerni, vönduð innrétting með ljúflokubúnaði. 
Þvottahús: Flísar á gólfi, innrétting með upphækkun undir vélum og skolvaski.
Sérgeymsla (0021) í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.

Hringhamar 35-37 eru tvö fimm hæða hús sem standa ofan á steyptum, sameiginlegum kjallara með geymslum og bílastæðum. Samtals eru 46 íbúðir í húsunum.
Húsið er steinsteypt, eingangrað að utan með steinull og klætt að stærstum hluta með álklæðningu, timburklæðning er inná flestum svölum. Gluggar eru eftirísettir áltré gluggakerfi frá Byko. Stigahús eru teppalögð en andyrishús flísalögð með hálkufríum flísum. Innréttingar og skápar eru frá Arens og eru með ljúflokunarbúnaði. Eldhústæki eru frá Bræðrunum Ormsson.
 
Byggingaraðili er Dverghamrar ehf., traustur verktaki síðan 1986. Fyrirtækið hefur lagt áherslu á byggingu íbúðar- og iðnaðarhúsnæðis og hefur byggt upp yfir 37 ára reynslu á því sviði.
Byggingastjórar fyrirtækisins starfa eftir vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem lögð er rík áhersla á fagleg vinnubrögð. Framkvæmdar eru reglulegar úttektir á verkþáttum framkvæmdarinnar þar sem tryggt er að unnið sé í samræmi við verklýsingar og að skilað sé traustri og góðri vöru á réttum tíma.
 
Arkitekt hússins er Orri Árnason hjá Zeppelin arkitektar. Raflagnahönnun er unnin af Agnari Sveinssyni. Lagnahönnun og burðarþolshönnun er unnin af verkfræðistofunni New Nordic Engineering. 
ATH: Ljósmyndir á vef sýna myndir af íbúð 506 sem er með sama skipulagi og íbúð 206. 

Allar nánari upplýsingar veitir:
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%  
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 74.900.- með vsk. 
5. Kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það verður lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
2528615_19

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kvistavellir 44
Skoða eignina Kvistavellir 44
Kvistavellir 44
221 Hafnarfjörður
119.7 m2
Fjölbýlishús
413
668 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Smyrilshlíð 15
Bílastæði
Skoða eignina Smyrilshlíð 15
Smyrilshlíð 15
102 Reykjavík
89.1 m2
Fjölbýlishús
211
930 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 13
Bílastæði
Opið hús:06. maí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hringhamar 13
Hringhamar 13
221 Hafnarfjörður
84.2 m2
Fjölbýlishús
312
842 þ.kr./m2
70.900.000 kr.
Skoða eignina Glitvellir 3
Opið hús:30. apríl kl 17:00-17:30
Skoða eignina Glitvellir 3
Glitvellir 3
221 Hafnarfjörður
123.5 m2
Fjölbýlishús
413
760 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin