Fasteignaleitin
Skráð 17. okt. 2026

Fannafold 75

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
242.7 m2
8 Herb.
6 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
169.000.000 kr.
Fermetraverð
696.333 kr./m2
Brunabótamat
130.450.000 kr.
Byggt 1988
Pallur
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
204133910
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir  vel skipulagt og vandað einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr við Fannafold 75 alls 242,7 m2, auk 9 m2 geymslu á baklóð.  Húsið stendur innarlega í lokaðri götu á besta stað í Grafarvogi. Stutt í skóla, sundlaug, íþróttir, verslanir og fl.  Möguleiki er að útbúa litla aukaíbúð i bilskúr en þar eru lagnir til að koma fyrir salerni.

Alls eru nú sex svefnherbergi í húsinu.  Góðar verandir, stórar útsýnissvalir í suður/vestur og falleg ræktuð lóð.

 
Nánari lýsing -Neðri hæð
Forstofa með fatahengi. 
Innangengt í rúmgóðan um 33 m2 innbyggðan bílskúr. Gott skápapláss í bílskúr og sjálfvirkur hurðaopnari. 
Hol með góðum hvítlökkuðum skápum.
Innaf holi er flísalögð gestasnyrting með upphengdu salerni, handklæðaofni og vaskinnréttingu. 
Tvö stór (um 15 FM) herbergi eru svo innaf holinu bæði með skápum. 

Nánari lýsing 2.hæð- Steyptur flísalagður stigi milli hæða.  
Stór stofa og borðstofa með uppteknum loftum klædd með Hlyn. Fallegur, nettur arinn í stofunni. Útgengt á stórar suður og vestur útsýnissvalir með glæsilegu útsýni yfir Akrafjall, Sundin, Reykjavík og fl. 
Eldhúsið er rúmgott  með borðkrók,  hvít/glans innrétting, flísar milli skápa, spanhelluborð, stálháfur, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu ,og loft eru upptekin.
þvottaherbergið er rúmgott með  innréttingu, gluggum og bakútgangi.

Svefnálma:  fjögur svefnherbergi, skápar í tveimur herbergjum. Útgengt úr hjónaherberginu á baklóðina þar sem eru hellulagðar stéttar, krakkahús, 9 m2 köld útigeymsla (bjálkahús), tveimur safnkössum og önnur köld geymsla undir þvottahús/verönd. 
Baðherbergi flísalagt með baðkari, sturtu, handklæðaofni, upphengdu salerni, innréttingu og glugga. 

Gólfefni- flísar á forstofu, bílskúr, holi, gestasnyrtingu, stiga, stofu, borðstofu, eldhúsi, þvottaherbergi og baðherbergi.  Dúkur á öllum svefnherbergjum. 
   
Falleg ræktuð lóð í Japönskum stíl, góðar hellulagðar stéttar og fallegur trjágróður.  Hellulagt bílaplan með hita. 3ja fasa 11kw rafmagnshleðslutengill fyrir bíla, fylgir á útvegg við bílskúr.  Einnig fylgir Gerfihnattadiskur á skorsteini með móttakara . Þá fylgja einnig 4 eftirlitsmyndavélar utanhús sem eru tengdar og vakta hús+lóð vel (2 terrabite).

 
Nýleg útihurð (aðalhurð).  Húsið er hraunað að utan og var málað fyrir um nokkrum árum síðan

Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is 
    

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (66)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Spóaás 17
Á einni hæð
Opið hús:19. okt. kl 16:30-17:30
Skoða eignina Spóaás 17
Spóaás 17
221 Hafnarfjörður
242,2 m2
Einbýlishús
725
743 þ.kr./m2
179.900.000 kr.
Skoða eignina Merkurgata 3
Opið hús:19. okt. kl 16:30-17:30
Skoða eignina Merkurgata 3
Merkurgata 3
220 Hafnarfjörður
242,9 m2
Einbýlishús
725
658 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Skoða eignina Sóltún 2
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Opið hús:21. okt. kl 17:15-17:45
Skoða eignina Sóltún 2
Sóltún 2
250 Garður
235,6 m2
Einbýlishús
614
509 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Fossvogsvegur 10
Bílastæði
Opið hús:20. okt. kl 16:30-17:30
Skoða eignina Fossvogsvegur 10
Fossvogsvegur 10
108 Reykjavík
233,5 m2
Raðhús
524
1435 þ.kr./m2
335.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin