Fasteignaleitin
Skráð 13. maí 2025
Deila eign
Deila

Eiðismýri 30

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Seltjarnarnes-170
95.4 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
82.900.000 kr.
Fermetraverð
868.973 kr./m2
Fasteignamat
80.900.000 kr.
Brunabótamat
57.030.000 kr.
Mynd af Árni Helgason
Árni Helgason
Löggiltur Fasteignasali
Byggt 1994
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Útsýni
Aðgengi fatl.
Sameig. Inng.
60 ára og eldri
Fasteignanúmer
2214850
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
yfirbyggðar s-svalir
Lóð
4,63
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Samþykkt var á aðalfundi 2.apríl 2024 að taka tilboði Raflausna í hleðslukerfi fyrir húsið. Grunnkerfi verður lagt í bílakjallara og
stöðvar settar við bílastæði á sameiginlegur stæðum á lóð. Sjá nánar í aðalfundargerð 02.04.24, þessu er lokið.
Á húsfundi í mars 2024 var rætt um rúðuskipti og kynnt var tilboð í framkvæmdir, eftir umræður var vísað til stjórnar að sækjast eftir uppfærðu tilboði. Á aðalfundi 2024 var uppfært tilboð kynnt en eftir frekari umræður var ákveðið að leita fleiri tilboða og fresta frekari ákvörðunum þar til fleiri tilboð liggja fyrir. Sjá nánar í húsfundargerð 13.03.24 og aðalfundargerð 02.04.24. Á aðalfundi 1.4. 2025 var ákveðið að fá tilboð í lagfæringar og skipti á þeim gluggum/gleri sem þyrfti.
Gallar
Íbúðin er ekki í samræmi við teikningar þar sem hún er skráð 3ja herbergja en er í reynd með einu svefnherbergi. Móða er í gleri í svefnherbergi. Nokkuð sér á parketi í stofu. Allnokkuð sér á gleri í þaki yfirbyggingar svala. Dyrasími er bilaður en formanni húsfélags hefur verið tilkynnt um það.
Kvöð / kvaðir
Kvöð er um að aðeins megi selja íbúðina 60 ára og eldri og þarf samþykki Félags eldri borgara fyrir sölunni.
Kvöð er um aðgengi að allri byggingunni að utan vegna umhirðu, viðhalds og viðgerða. Vegna viðhalds, viðgerða og aflesturs mæla er kvöð um aðgengi allra eigna í húsinu að inntaksrými 0029 í kjallara. 
Domusnova og Árni Helga lgfs. kynna til sölu fallega og rúmgóða 2ja-3ja herbergja íbúð á Seltjarnarnesi í húsi fyrir 60 ára og eldri. Um er að ræða 95,4 fermetra íbúð í lyftuhúsi á þessum vinsæla og eftirsótta stað að Eiðismýri 30. Samkvæmt teikningu er gert ráð fyrir öðru svefnherbergi og einfalt væri að koma því fyrir. Sameiginleg bílastæði hússins eru með snjóbræðslu en þessari íbúð fylgir stæði í bílgeymslu. Yfirbyggðar svalir til suð-vesturs. íbúðin er laus við kaupsamning.

Íbúðin er með forstofu, rúmgóðu svefnherbergi, stórri stofu sem rúmar setustofu og borðstofu, eldhúsi og baðherbergi og þvottahús. Sérgeymsla í kjallara sem er 7,9 fermetrar að stærð. 
Um er að ræða frábærlega staðsetta íbúð fyrir 60 ára og eldri með aðgengi að þjónustu innandyra. Húsvörður er starfandi í húsinu. Setustofa er í sameign á hæðinni. Stór samkomusalur í kjallara með billard borði, borðtennisborði, æfingatækjum og setustofu. Þá er matsalur/veislusalur í eigu Seltjarnarnesbæjar þar sem íbúar geta leigt undir einkasamkvæmi. Fallega frágengin lóð og snjóbræðsla undir stéttum.
Íbúðin er í göngufæri við alla helstu þjónustu, s.s. verslanir, bókasafn, heilsugæslu, sundlaug og líkamsrækt. Þak var lagfært og málað sumarið 2023.

Nánari lýsing:
Stofa/borðstofa er stór með viðarparketi á gólfi og gluggum til suðvesturs og er þar útgengi á yfirbyggðar svalir.  Á teikningu er hluti rýmisins herbergi og er auðvelt að bæta því við.
Eldhús: Með viðarparketi á gólfi og fallegri hvítri eldhúsinnréttingu með viðarrömmum. Flísar á milli skápa, 
Svefnherbergi: Með viðarparketi á gólfi, stórir fataskápar og er herbergið mjög rúmgott.
Baðherbergi: Með dúk á gólfi og flísar á veggjum, flísalögð sturta. Falleg innrétting við vask með góðu skápaplássi. 
Þvottahús: með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, skápar.
Forstofa: Með viðarparketi á gólfi, fataskápur er í rýminu.
Sérgeymsla í sameign í kjallara, 7,9fm að stærð.
Stæði í bílgeymslu fylgir þesari íbúð.
Hjóla- og vagnageymsla er í kjallara. Útgengt er á lóð við hlið hjólageymslu.

Smellið hér til að fá sent söluyfirlit

Um dánarbú er að ræða og hafa erfingjar ekki búið í íbúðinni og þvi er kaupendum ráðlagt að skoða íbúðina vel áður en tilboð er gert. íbúðin getur afhentst við undirritun kaupsamnings.

Nánari upplýsingar veita:
Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / arni@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1994
Fasteignanúmer
2214850
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
8
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.280.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Melabraut 9
Opið hús:08. júní kl 14:00-14:30
Skoða eignina Melabraut 9
Melabraut 9
170 Seltjarnarnes
111.4 m2
Hæð
212
762 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Heklureitur - íbúð 201
Opið hús:09. júní kl 16:00-17:00
Heklureitur - íbúð 201
105 Reykjavík
77 m2
Fjölbýlishús
312
1038 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Ljósavík 30
Skoða eignina Ljósavík 30
Ljósavík 30
112 Reykjavík
111.5 m2
Fjölbýlishús
413
743 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 5B - íb. 105
Bílastæði
Opið hús:08. júní kl 13:00-14:00
Jöfursbás 5B - íb. 105
112 Reykjavík
82.7 m2
Fjölbýlishús
312
966 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin