Fallegt og mjög vel staðsett einbýlishús á einni hæð ásamt innbyggðum bílskúr innst í botnlangagötu með óhindruðu útsýni út á fjörð.
Húsið er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 228,6 fm og þar af er bílskúr 56,4fm.
Húsið hefur verið mikið endurnýjað sl ár, að innan var húsið endurnýjað að innan árið 2003. Þakið var endurnýjað árið 2008 og klætt með áli. Húsið var klætt að hluta að utan með hvítubárujárni árið 2020.
Búið er að endurnýja bílskúrshurð með opnara.
* 5 Svefnherbergi
* 2 Baðherbergi
* Saunaklefi
* Gólfhiti
* Sérsmíðaðar innréttingar
* Steypt og stimpluð innkeyrsla
Húsið skiptist í forstofu, gestasalerni, fimm svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, sjónvarpsstofu, stofu/sólstofu, þvottahús, geymsla og bílskúr.
Nánari lýsing:
Forstofa með mjög góðu skápaplássi og flísar á gólfi. Útgengt er úr forstofu út í bakgarð, þar sem lítill sólpallur þar sem hægt er að njóta morgunsólar.
Gestasnyrting er inn af forstofu með glugga og flísalagt í hólf og gólf.
Eldhús mjög rúmgott með sérsmíðaðri innréttingu með góðu skápaplássi, innbyggð Miele uppþvottavél, Miele gashelluborð, Miele bakaraofn, Miele combiofn og flísar á gólfi.
Útgengt er úr borðstofurými út í garð.
Sjónvarpshol með parketi á gólfi - möguleiki er að útbúa herbergi á kostnað sjónvarpsholsinns.
Stofa með parketi á gólfi, fallegt útsýni. Af stofupalli er gengið niður í sólstofu.
Sólstofa með fallegu útsýni yfir Fjörðinn, kamína og flísar á gólfi. Útgengt er út í garð úr sólskálanum.
Svefnherbergisgangur er flísalagður
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Svefnherbergi 2 með skáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi 3 með skáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi 4 með skáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 5 með parketi á gólfi
Baðherbergi með innangengri sturtu, sérsmíðuð innrétting, upphengt salerni, gluggi og flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús er mjög rúmgott með góðri innréttingu, gott vinnurými, vaskur, tveim gluggum og flísum á gólfi og á gluggavegg.
Geymsla og sauna inn af þvottahúsi, geymsla með sérsmíðuðum skápum og flísar á gólfi.
Bílskúr rúmgóður með flísum á gólfi, gluggar eru á vinstri hlið sem hleypa inn birtu. Búið er að endurnýja bílskúrshurð og opnara, heitt og kalt vatn.
Rúmgott stimpilsteypt bílaplan er fyrir faman húsið með hitalögn sem gefur húsinu sérlega snyrtilegt yfirbragð.