** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög falleg og vel skipulögð 117,2 m2, 3ja herbergja endaíbúð með fallegu útsýni á efstu hæð ásamt bílastæði í bílageymslu í lyftuhúsi við Bjarkarholt 29 í miðbæ Mosfellsbæjar. Eignin er skráð 117,2 m2, þar af íbúð 110,0 m2 og geymsla 7,2 m2. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, eldhús, stofu og borðstofu. Sérgeymsla í kjallara. Um er að ræða rúmgóða íbúð með fallegum innréttingum og gólfefnum. Tvennar svalir með svalalokunum. Frábær staðsetning í miðbæ Mosfellsbæjar þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Nánari lýsing:Forstofa er með fataskáp, fatahengi og vínylparketi á gólfi.
Gangur/hol er með vínylparketi á gólfi.
Eldhús er með fallegri L-laga innréttingu og vínylparketi. Í innréttingu er innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, bakaraofn, spanhelluborð og vifta. Gluggar á tvo vegu eru í eldhúsi með fallegu útsýni.
Stofa/borðstofa er í opnu björtu rými með vínylparketi á gólfi. Úr rýminu er gengið út á tvennar svalir með svalalokunum, aðrar í suðurátt og hinar í vesturátt.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með fataskápum og vínylparketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskáp og vínylparketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með fallegri innréttingu, innréttingu fyrir þvottavél og þurkara, skápum, vegghengdu salerni, handklæðaofni og sturtu. Gluggi er á baðherbergi.
Sérgeymsla er í kjallara, skráð 7,2 m2.
Eigninni fylgir
bílastæði í lokaðri bílageymslu og er búið að setja upp hleðslustöðvakerfi. Íbúðinni fylgir einnig hlutdeild að sameiginlegri
hjóla- og vagnageymslu.Verð kr. 96.900.000,-