Fasteignaleitin
Skráð 2. okt. 2026

Desjamýri 1

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
207 m2
1 Herb.
2 Baðherb.
Verð
92.900.000 kr.
Fermetraverð
448.792 kr./m2
Brunabótamat
90.300.000 kr.
Byggt 2017
Sérinng.
Fasteignanúmer
23592371
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Inngangur
Sérinngangur

Aldir Fasteignir og Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali (s:6944112 / freyja@aldirfasteignir.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:
Virkilega gott 207 m2 atvinnuhúsnæði á afgirtu svæði með læstu hliði og öryggimyndavélakerfi við í Desjamýri 1, bil 3, í Mosfellsbæ.  Húsnæðið samanstendur af 157,5 m2 atvinnurými á jarðhæð með tveimur rafdrifnum innkeyrsluhurðum við báða enda, tveimur inngönguhurðum og 49,5 m2 millilofti með skrifstofu-, lager og kaffiaðstöðu. Mikil lofthæð er í aðalrými, stór rafdrifin innkeyrsluhurð er að framanverðu í norðuraustur og önnur minni bakatil í suðvestur. Einnig eru gönguhurðir beggja megin.  Húsið er tvískipt í dag með léttum vegg á milli fremra og aftara rýmis með gönguhurð á milli og er annað rýmið í útleigu í dag. Lítið mál að opna aftur á milli. Tvö salerni og tvær eldhúsaðstöður. Eigninni fylgir stórt sér afnota malbikað útisvæði. 


Húsnæðið er skráð 207 fm og skiptist í 157,5 fm  iðnaðarrými á jarðhæð merkt  0103 og 49,5 fm skrifstofur á millilofti skráð 49,5 fm. Búið að er bæta við milliloftið og er það því töluvert fleiri fermetrar en er skráð. Sjá myndir af núverandi skipulagi. 
 
Nánari lýsing:
Innkeyrsluhurðir eru rafdrifnar. Gólf í aðalrými er steypt, salernisaðstaða er hrá með upphengdu salerni og handlaug. Veglegur tréstigi upp á milliloft er dúkalagður með álprófílum á handriði. Þar er parket á gólfi og er búið að skipta rýminu upp í þrennt; fremst er milliloft sem var bætt við og er því aukalega við þessa skráðu 49,5 fm, í millirýminu er nett eldhúsinnrétting með vaski og tengi fyrir ísskáp ásamt salerni með handlaug, í aftara rýminu er einnig eldhúsinnrétting með vaski og tengi fyrir ísskáp. Góður gluggi er með opnanlegu fagi. 3ja fasa rafmagn er í húsinu og er búið að bæta við annarri rafmagnstöflu með aukaöryggjum.
Húsið sem byggt er árið 2017 er úr forsteyptum einingum og límtré. Lóðin er mjög snyrtileg með góðu aðgengi, malbikuðum bílastæðum og er afgirt með læstu hliði.

Vsk kvöð hvílir á húsnæðinu sem kaupandi í vsk skyldri starfsemi skal yfirtaka. 

Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða freyja@aldirfasteignir.is

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (12)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Koparslétta 14
Skoða eignina Koparslétta 14
Koparslétta 14
162 Reykjavík
173.3 m2
Atvinnuhúsn.
1
398 þ.kr./m2
69.000.000 kr.
Skoða eignina Bronsslétta 3
Skoða eignina Bronsslétta 3
Bronsslétta 3
162 Reykjavík
43.9 m2
Atvinnuhúsn.
613 þ.kr./m2
26.900.000 kr.
Skoða eignina Bugðufljót 15
Skoða eignina Bugðufljót 15
Bugðufljót 15
270 Mosfellsbær
168.6 m2
Atvinnuhúsn.
378 þ.kr./m2
63.800.000 kr.
Skoða eignina Frostafold 25
Bílskúr
Skoða eignina Frostafold 25
Frostafold 25
112 Reykjavík
142.8 m2
Fjölbýlishús
412
567 þ.kr./m2
80.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin