Falleg 4ra herbergja íbúð á jarðhæð í tvíbýlishúsi með sérinngangi,
yfirbyggðu palli og bílskúr.
* Birt stærð samkv HMS er 126,1m2
* 17,7m2 bílskúr
* Upphitað bílaplan
* Stutt í Húsaskóla og tvö leikskóla
Eignin er í fjölskylduvænu sérbýlishúsahverfi í Húsahverfinu í Grafarvogi. Falleg eign í góðu hverfi sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingarInga Reynis lgf í síma 8201-1903, inga@palssonfasteignasala.is og
Páll Pálsson Lgf. í síma 775-4000, palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.is
www.verdmat.is
Góð ráð fyrir kaupendurEignin skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu, stofu, 3 svefnherbergjum, sjónvarpsholi, baðherbergi og þvottahúsi/geymslu..Forstofa með flísum á gólfi
Stofa og borðstofa er í sameiginlegu rými með eldhúsinu, björt og fallegt rými með útgengni í garðinn. Parket á gólfi.
Eldhús með góðri innréttingu og parket á gólfi.
Baðherbergi er með sérsmíðuðum innréttingum og hita í gólfi, horn baðkar/sturta/nudd. Flísar á gólfi.
Hjónasvefnherbergi er rúmgott með parket á gólfi.
Barnaherbergi er bjart með parket á gólfi.
Barnaherbergi rúmgott með parket á gólfi.
Þvottahús/geymsla er inn í íbúðinni.
Bílaplanið er hellulagt með snjó-bræðslu
Eignin er í góðu og fjölskylduvænu hverfi efst í Grafarvogi.
Leikskóli, grunnskóli, sundlaug og íþróttamiðstöð í göngufæri og stutt í alla aðra þjónustu.
Stutt er á golfvöll og fallegar gönguleiðir allt um kring.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.