** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA ** Þórdís Björk Davíðsdóttur löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna:Fallegt, vel skipulagt og fjölskylduvænt einbýlishús á einni hæð með aukaíbúð við Vallarbyggð 2, 220 Hafnarfirði.
Eignin hefur verið mikið endurbætt og býður upp á glæsilega útiaðstöðu með nýlegri og afar vandaðri verönd sem hönnuð var af Birni Jóhannssyni landslagsarkitekt hjá URBAN BEAT. Hönnunin tekur mið af þægindum allrar fjölskyldunnar og þar má finna heitan pott, kaldan pott, sauna, tvær kaldar geymslur og skjólveggi sem veita skjól fyrir helstu vindáttum.
SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT sent til þín samstundisSamkvæmt skráningu HMS er heildarstærð eignarinnar
217,4 fm og þar af er bílskúr skráður 56,7 fm. Tekið hefur verið af bílskúrnum fyrir um 20 fm
stúdíóíbúð með sérinngangi og svefnlofti.
Um er að ræða einstaklega góða og fjölskylduvæna eign þar sem aðalíbúð og aukaíbúð skapa fjölbreytta möguleika, hvort sem er fyrir stóra fjölskyldu, útleigu eða aðstöðu fyrir aðstandendur. SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - Með húsgögnumSMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - ÁN húsgagnaFramkvæmdir seljanda síðustu ára.2019 - Bílskúr skipt upp og útbúin stúdíóíbúð með svefnlofti. Milliveggur settur upp sem skiptir upp íbúð og bílskúr. Nauðsynleg vatnsvörn
2019 - Skápainnrétting sett upp í bílskúr, samhliða þrifavaskur settur í bískúr og sá pípulagningameistari um lagnir í bílskúr og íbúð.
2019 - Gluggar og hurðir pússaðar og málaðar at utanverðu.
2019 - Bætt við eldhúsinnréttingu og hún plöstuð
2022 - Aðal - baðherbergi allt endurnýjað.
2026 - Flísalagt anddyri
2026 - Baðherbergi við forstofu endurnýjað:
- Flísalögn bæði gólf og veggir
- Skipt um vegghengt salerni, innréttingu, vask, sett sturta og sturtuklefi - Walk in sturta.
Framkvæmdir seljenda síðustu ára - Lóð - Garður - Ytra byrði: 2020 -
- Brotfleig þurfti til að fjarlægja hraunkant í garði.
- Jarðvegsskipti fyrir hellulögn, niðurfallslagnir í garði settar ásamt vatnslögn fyrir heitan pott, kaldan pott og útisturta sett af pípulagningameistara
- Heitur pottur settur frá Trefjum - Kaldur pottur settur
- Undirstöður fyrir pall, skjólgirðingu og pergolu. Allt svæði hellulagt með 60x60 hellum frá BM Vallá.
- Hraunhleðsla fyrir blómabeð úr sérvöldu hrauni úr lóðinni.
- Skjólgirðing og útigeymslur smíðaðar
- Útilýsing sett upp með sólúri
2021 - Útisturta byggð
2021 - Þakkanntur málaður.
2021 -
Hellulögn á svæði sunnan og vestan megin:- Jarðvegsskipti fyrir hellulögn og hellulagt bílastæði
- Hlaðinn veggur fyrir framan hús og aðkoma að húsi
- Kantsteinn settur meðfram húsi, bætt við skjólgirðingu, beð sett meðfram húsi og sérvalin gróður settur í öll beð
- Ruslaskýli byggt og lagfærð og tyrft umferðareyja
2022 - Pergola byggð - Markísa sett í garð - Útdraganleggir skjólveggir
2022 - Hitalampar settir við útgöngu í suður út í garð
2025 - Gufuklefa bætt við
2025 - Bætt við hraunhleðslu
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.is Innan íbúðarrýmis er forstofa, 3 herbergi, 2 baðherbergi, fataherbergi, eldhús, stofa, borðstofa, sjónvarpsstofa, gangur, þvottahús og innangengur bílskúr.
Nánari lýsing eignar:
Forstofan er björt og rúmgóð og nýlega flísalögð (febrúar 2026). Úr forstofu er eitt svefnherbergi og gengið inn í bílskúrinn.
Komið er úr forstofunni inní
stórt alrými þar sem eru samliggjandi í opnu og björtu rými með mikilli lofthæð og stórum gluggum í þrjár áttir; sjónvarpsstofa, stofa, borðstofa og eldhús.
Eldhúsið er með góðri innréttingu, vel skipulögðu skápaplássi, innbyggðum ísskáp, tengi fyrir uppþvottavél og góðu vinnuplássi. Hluti skápahurða eru filmaðar.
Borðstofan er rúmgóð og björt.
Stofan og
sjónvarpsstofa eru í góðu flæði við borðstofuna og eldhúsið. Gólfsíðir gluggar til suðurs og vesturs veit mikla birtu.
Útgengt er úr stofu út í fallegan garðinn og á glæsilega verönd.Svefnherbergin eru þrjú og eru öll mjög rúmgóð og með mikilli lofthæð. Tvö eru við svefnherbergisganginn en það þriðja er inn af forstofunni.
Herbergi I: Er hjónaherbergið sem er vinstra megin af ganginum og inn af því er stórt fataherbergi sem tengist einnig inn í þvottahús.
Herbergi II: Er hægra megin af ganginum og er með góðum fataskápum. Hægt er að gera setja svefnloft eða bara háaloft.
Herbergi III: Er inn af forstofunni og er mjög rúmgott með góðum fataskápum og stóru svefnlofti.
Tvö baðherbergi eru innan íbúðarrýmis og eru bæði endurnýjuð.Baðherbergi I sem er við svefnherbergisganginn var allt endurnýjað 2022 og er hið glæsilegasta. Þar er stór flísalögð sturta með tveimur sturtum, falleg hvít sérsmíðuð innrétting frá Fríform undir og við handlaug, upphengt salerni, handklæðaofn og þar sem það er útgengt á veröndina / garðinn er gott aðgengi að heita og kalda pottinum ásamt því að nýta sér gufu / sauna og útisturtuna. Steinn frá Rein.
Baðherbergi II er við forstofuna og hefur að mestu verið endurnýjað febrúar 2026. Flísar eru á gólfi og veggjum, sturta, innrétting undir handlaug og handklæðaofn.
Þvottahús: Er mjög rúmgott með góðri innréttingu á tveimur veggjum, vaski öðru megin, þvottasnúrum sem hægt er að draga upp, mikilli lofthæð, flísum á gólfi og útgengi í garð austan megin.
Gólfefni: Gólfefni hússins er gegnheilt niðurlímt parket sem hægt er að pússa, en flísar eru á votrýmum.
Bílskúr
Aukaíbúð í útleigu: Um er að ræða stúdíóíbúð með sérinngangi á austurhlið hússins. Íbúðin er um 20 fm og hefur verið útbúin úr hluta bílskúrs. Þar er stofa, lítið eldhús, baðherbergi og svefnloft. Harðparket er á gólfi nema á baðherbergi þar sem flísar eru á gólfi.
Garður / Lóð og útisvæði: Einstaklega glæsileg og nýleg verönd með öllum helstu þægindum. Hönnunin er afar metnaðarfull og vel útfærð með heitum potti, köldum potti, sauna, tveimur köldum geymslum (
þar sem rýmir geymslu fyrir t.a.m. kajak, útihúsgögn, grill og fl.) pergólu, markísu, útdraganlegum skjólveggjum og skjólveggjum sem skapa notalegt og skjólsælt umhverfi til útiveru allt árið um kring.
Nágrenni: Stutt er í leik-og grunnskóla sem og alla helstu þjónustu. Golfklúbburinn Keilir er í göngufæri ca 20 mínútur.
Um er að ræða virkilega glæsilega og vel skipulagða eign á vinsælum og friðsælum stað í Hafnarfirði þar sem sameinast rúmgóð og björt fjölskyldueign, falleg útisvæði tengd náttúrinni í kring og möguleikum á leigutekjum af aukaíbúð.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat. Heimasíða RE/MAXGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
· Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.
· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
· Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk