Austurbrú 12 íbúð 203 - Glæsileg þriggja herbergja íbúð á annarri hæð í nýbyggingu - Stærð 102,8 m²
Nánari upplýsingar veitir Sigurður H. Þrastarson, siggithrastar@kaupa.is, 888-6661.
Hvammur fasteignasala 466-1600Smelltu
hér til að skoða lausar íbúðir og verkefnið.
Við inngang er bjart og opið
anddyri með góðum skápum sem setur fallegan svip á eignina. Frá anddyrinu opnast einstaklega fallegt alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa renna saman í eitt heildstætt og glæsilegt rými.
Eldhúsið er sérlega vandað með fallegri innréttingu, kvartssteini á borðplötum og rúmgóðri eldhúseyju með innbyggðu spanhelluborði. Innfelldur vaskur, bakaraofn í vinnuhæð og hágæða frágangur undirstrika lúxusinn. Allar skúffur og skápar eru með ljúflokum sem tryggja þægindi og hljóðláta notkun. Innfelld lýsing frá Lumex skapar hlýlegt og nútímalegt yfirbragð.
Frá
stofu og
borðstofu er útgengt á rúmgóðar svalir til suðurs þar sem njóta má sólar og góðra útivistarstunda í skjólsælu umhverfi.
Hjónaherbergið er rúmgott og vel skipulagt með góðum tvöföldum fataskáp. Þaðan er útgengt á skjólgóðar svalir til norðurs með einstöku útsýni yfir Sigurhæð og Akureyrarkirkju, sem gefur eigninni sérstakan sjarma.
Barnaherbergið er bjart og notalegt með innbyggðum skáp.
Baðherbergið er einstaklega glæsilegt, flísalagt í hólf og gólf með fallegri innréttingu frá Parka og kvartssteini á borðplötu. Stór sturta með glerskilrúmi og upphengt salerni undirstrika vandaðan frágang og nútímalega hönnun.
Þvottahúsið er einnig flísalagt og afar vel útbúið með sérsmíðuðum skápum fyrir þvottavél og þurrkara ásamt fallegri kvartssteinsborðplötu sem eykur bæði notagildi og útlit rýmisins.
Íbúðinni fylgir sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu sem og sérgeymsla, 11,1 m², í sameign.
Allar innréttingar, innihurðir, skápar og Electrolux eldhústæki eru frá Parka.
Blöndunar- og hreinlætistæki eru frá Tengi.
Íbúðinni er skilað fullbúinni en án gólfefna.
Sameign er með glæsilegra móti, þar sem komið er inn í rúmgott anddyri.
Flísar á gólfi frá kjallara og upp á pall fyrstu hæðar. Frá fyrstu hæð eru stigagangarnir teppalagðir.
Innangengt úr hverjum stigagangi niður í lokaða bílageymslu og úr bílageymslunni er innangengt fyrir eigendur íbúða í Áshamar 10-18 inn á Skáld Hótel.
Eigendur geta nýtt sér þjónustu hótelsins, þar má nefna morgunmat, þvottaþjónustu og líkamsrækt.
Eigninni er skilað skv. skilalýsingu verktaka.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það leggst á eignina.
Arkitektar: THG arkitektar
Verktaki: JE Skjanni ehf.