STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Bjarta og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á neðri hæð við Móabarð 2, 220 Hafnarfjörður. Eignin er samtals 93,6 fm, þar af er íbúðin 70,9 fm og bílskúr 22,7 fm. Eignin skiptist í forstofu, stofu og borðstofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi, bílskúr, sameiginlegt þvottahús, garður.Nánari upplýsingar veitir Hallveig Jónsdóttir, Löggiltur fasteignasali, í síma 699 0496 eða á netfanginu hallveig@stofnfasteignasala.is.Helstu kostir:Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
22,7 fm bílskúr.
Rúmgóð stofa með stórum gluggum.
Sérinngangur og aðgengi að útisvæði og garði.
Gróið íbúðahverfi í Hafnarfirði.
Nánari lýsing:Forstofa: Forstofa með flísum á gólfi.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð stofa með harðparketi á gólfi og stórum gluggum.
Eldhús: Eldhús með hvítri innréttingu, viðarlitaðri borðplötu og glugga yfir vaski. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með harðparketi á gólfi og stórum glugga.
Baðherbergi: Baðherbergi með dökkum flísum á hluta veggja og gólfi, vegghengdu salerni, handlaug með innréttingu og sturtu. Handklæðaofn og gluggi eru á baðherberginu.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús með flísum á gólfi, glugga og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílskúr: Eigninni tilheyrir 22,7 fm bílskúr.
Útisvæði: Útgengt er úr forstofu á hellulagt útisvæði og þaðan út í garð.
Staðsetning:Móabarð 2 er í grónu íbúðahverfi í Hafnarfirði þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun og aðra þjónustu.
Viðhald:2017-2018 var að sögn eignanda eftirfarandi gert:
Hita og neysluvatnslagnir endurnýjaðar og sameiginlegum hita skipt upp í sér hita fyrir sitthvora íbúð.
Skólp endurnýjað innan íbúðar og cirka 1m út fyrir útvegg.
Vatnsveitan setti nýtt kaldavatns inntak fyrir húsið.
Rafmagnstöflu sem var fyrir báðar íbúðir var skipt í tvær töflur fyrir sitthvora íbúð og tekið inn þriggja fasa rafmagn.
Raflagnir endurnýjaðar í íbúð og dregið þriggja fasa rafmagn í bílskúr og þar sett upp rafmagnstafla.
Lagt rafmagnsrör fyrir hleðslustöð eða lýsingu.
Nýjar hita og neysluvatnslagnir lagðar í bílskúr.
Nánari upplýsingar veitir Hallveig Jónsdóttir, Löggiltur fasteignasali, í síma 699 0496 eða á netfanginu hallveig@stofnfasteignasala.is.Við hjá STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu.
Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.
STOFN Fasteignasala – setjum þig í fyrsta sætið.