Fasteignaleitin
Skráð 10. júní 2026

Ægisíða 50

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
97.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
922.998 kr./m2
Fasteignamat
98.950.000 kr.
Brunabótamat
48.800.000 kr.
HL
Hreiðar Levý Guðmundsson
löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2028735
Landnúmer
106576
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Hreiðar Levý, lögg. fasteignasali og Betri Stofan Fasteignasala kynna fallega, bjarta og vel skipulagða 97,4fm íbúð á neðstu hæð í fallegu og virðulegu húsi að Ægisíðu 50, 107 Reykjavík. Íbúðin er vel skipulögð og var endurnýjuð fyrir um 10 árum með sérsmíðuðum og vönduðum innréttingum. Íbúðin var endurnýjuð með aðstoð innanhússarkitekts Hönnu Stínu og innréttingar sérsmíðaðar frá Heggi. Gólf er parketlagt eikarplönkum frá Agli Árnasyni. Eldhús með sérsmíðaðri innréttingu. Við endurnýjun var áhersla lögð á góða lýsingu. Ljós eru frá Lúmex og fylgja með. Íbúðin skiptist m.a. í stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, hol og forstofu. Sér inngangur og sér geymslur. Íbúðin er á neðstu hæð en fjórar íbúðir eru í húsinu. Sér bílastæði er fyrir íbúðina fyrir aftan hús. Fallegur sameiginlegur garður fyrir framan hús.

Frábær staðsetning við Ægisíðu í Vesturbænum. Sjávarsíðan er beint fyrir framan húsið með stórkostlegu útsýni, einstakt útivistarsvæði með fallegum göngu og hjólastígum. Skólar á öllum stigum í göngufjarlægð ásamt rómaðri nærþjónustu Vesturbæjarins. Þá er íþróttasvæði Reykjavíkurstórveldisins K.R. í næsta nágrenni. Afar vinsæl og fjölskylduvæn staðsetning.

Eignin Ægisíða 50 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 202-8735, birt stærð 97.4 fm.

Nánari lýsing: 
Forstofa: Komið er inn um sér inngang í flísalagða forstofu með fatahengi
Svefnherbergi I: Rúmgott svefnherbergi innaf forstofu. 
Stofa: Opin, rúmgóð og björt, samliggjandi eldhúsi.
Eldhús: Falleg sérsmíðuð innrétting með búrskáp og eyju. Gott skápa og vinnupláss. Eyja er með litlu barborði, spam hellum og háfi fyrir ofan helluborð. Í útskotsglugga eldhúss er eldhúsbekkur með skúffum, bólstraður leðri og ull sem setur skemmtilegan svip á rýmið. Einstaklega fallegt sjávarútsýni út um útskotsglugga.
Herbergjahol: Tengir saman 2 svefnherbergi og baðherbergi. Innbyggður fataskápur í holi.
Svefnherbergi II: Rúmgott
Svefnherbergi III: Gott barnaherbergi.
Baðherbergi: Standsett á vandaðan hátt fyrir um 10 árum síðan. Flísalagt í hólf og gólf, með "walk in" sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni, upphengdum vaski ásamt upphengdum speglaskáp.

Geymsla: Sérgeymsla á sameignargangi á sömu hæð og íbúð. Lítil útigeymsla fylgir einnig íbúðinni.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús á sömu hæð og íbúðin. Sértengill fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílastæði: Sérbílastæði fyrir aftan hús fyrir eignina.

Lóð: Húsið stendur á fallegri 1.249fm hornlóð. Tyrfður garður með trjám fyrir framan hús.

Ægisíða í Vesturbæ Reykjavíkur er ein virðulegasta og eftirsóttasta gata borgarinnar, með óhindruðu sjávarútsýni og röð fallegra húsa.
Frábær staðsetning við strandlengjuna þar sem útivistarsvæði og gönguleiðir við sjóinn eru í næsta nágrenni.


Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/11/201744.200.000 kr.61.000.000 kr.97.4 m2626.283 kr.
24/06/201432.150.000 kr.37.500.000 kr.97.4 m2385.010 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Álfhólsvegur 149
Opið hús:15. júní kl 17:00-17:30
Álfhólsvegur 149
200 Kópavogur
69.3 m2
Fjölbýlishús
211
864 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Lóuflöt 4
Bílskúr
Skoða eignina Lóuflöt 4
Lóuflöt 4
311 Borgarnes
158.7 m2
Einbýlishús
413
541 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Stefnisvogur 46
Skoða eignina Stefnisvogur 46
Stefnisvogur 46
104 Reykjavík
50.2 m2
Fjölbýlishús
211
1054 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Skoða eignina Greniteigur 37
Bílskúr
Skoða eignina Greniteigur 37
Greniteigur 37
230 Reykjanesbær
172.6 m2
Raðhús
524
556 þ.kr./m2
96.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin