Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is - kynnir til sölu - Engajvegur 31 Ísafirði - Stór og falleg íbúð á fyrstu hæð og rishæð í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr, góð staðsetning og frábært útsýni.
Á fyrstu hæð er forstofa, borðstofa og setustofa, eldhús, geymsla, baðherbergi og tvö svefnherbergi.
Á rishæð er stigapallur/setustofa, tvö svefnherbergi, þvottaherbergi, geymsla og salerni.
Bílskúr á jarðhæð og tvær geymslur.
Nánari lýsing:
Aðalinngangur á fyrstu hæð frá Engjavegi, forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Þaðan er innangengt í stórt rými með fataskáp, þar er ein gömul eldhúsinnrétting, möguleiki á að breyta þessu rými í þvottahús eða jafnvel í svefnherbergi.
Björt og rúmgóð stofa og borðstofa í opnu rými með góðu útsýni, parket á gólfum og útgengt út á suðurvalir.
Eldhús var endurnýjað um 2017, á gólfi eru korkflísar, gólfhiti, innrétting með góðu skápaplássi, helluborð, ofn og uppþvottavél. Í eldhúsi er hringstigi upp á rishæð
Svefnálmugangur með parketi, þar er hleri við enda gangs og stigi niður í bílskúr.
Baðherbergi með sturtuklefa og baðkari. Flísar eru á gólfi og veggjum og hiti í gólfi, hvít innrétting.
Tvö svefnherbergi á hæðinni. Hjónaherbergi er mjög rúmgott, parket á gólfi og stór fataskápur, var áður tvö svefnherbergi en var sameinað í eitt stórt herbergi og er möguleiki á að breyta því aftur.
Annað svefnherbergi með parketi á gólfi, útgengt þar út á ágætar svalir með útsýni yfir fjörðinn.
Rishæð:
Hringistigi upp á rishæð. Stigapallur/setustofa með parketi.
Tvö rúmgóð svefnherbergi á á hæðinni, parket á gólfi.
Samliggjandi þvottaherbergi og geymsluherbergi, hleri inn í geymslu undir súð.
Lítið salerni á rishæð.
Bílskúr:
Bílskúr er á jarðhæð með aðkomu frá Seljalandsvegi, skráð stærð er 44,9 m². Stigi upp á efri hæð, hleri í svefnálmugangi.
Inn af bílskúrnum eru tvær góðar geymslur. Bílastæði fyrir framan bílskúrinn.
Sunnanmegin við húsið er garður sem tilheyrir íbúðinni.