Virkilega hlýleg og björt 4ra herbergja íbúð með verönd á góðum stað í Hafnarfirði
* Verönd til suðurs með skjólveggjum
* Endurnýjað baðherbergi og parket í svefnherbergjum
* Fallegt útsýni
* Sérinngangur
Viðhald hússins síðastliðin ár tiltelur ma.
* 2022 var húsið og gluggar málað að utan
Nánari upplýsingar veita:Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð samkv. HMS er 101,80 m2 og fyrirhugað fasteignamat 2027 er 67.350.000 kr.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu / borðstofu, svalir, 3 svefnherbergi, baðherbergi, og þvottahús / geymslu.Forstofa er flísalögð með fataskáp.
Eldhús er í opnu flæði með stofu og myndar bjart, rúmgott rými. Góður borðkrókur við glugga. L-laga innrétting með bakarofn í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél og neðri skápar sem afmarka rýmið. Flísar á gólfi og útgengi út á skjólsæla
verönd.
Stofa /
borðstofa er með parket á gólfi og útgengt út á svalir til norðurs.
Svefnherbergi 1 er með gluggum á tvo vegu og parket á gólfi.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 3 er með parket á gólfi.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað og er flísalagt með baðkari með sturtu, upphengt wc og innrétting með handlaug.
Þvottahús / lítil
geymsla er innaf eldhúsi, þar eru tengi fyrir þvottavél / þurrkara og hillur.
Í sameign er sameiginleg geymsla þar sem hver íbúð hefur afmarkað pláss samkv. samkomulagi.
Fjölskylduvæn staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, svo sem leik- og grunnskóla, golfvöllinn Keili og margt fleira.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.