Fasteignaleitin
Skráð 22. apríl 2026

Laugavegur 85

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
100.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
104.000.000 kr.
Fermetraverð
1.038.961 kr./m2
Fasteignamat
85.950.000 kr.
Brunabótamat
52.100.000 kr.
BS
Bjarni Sævar Geirsson
Tengiliður seljanda
Eignir í sölu
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
F2005361
Landnúmer
101599
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer íbúðar
85
Svalir
Inngangur
Sameiginlegur

Til sölu er björt og falleg 3ja herbergja íbúð á 2.hæð í vel viðhöldnu lyftuhúsi að Laugavegi 85. Íbúðin skiptist í hol, tvö svefnherbergi, stofu, eldhús og snyrtingu, þvottahús og geymsla í kjallara

Íbúð 01 02 01 að Laugavegi 85 er er til sölu. Um er að ræða 3ja herbergja íbúð á annari hæð. 

Íbúðin er björt og innréttuð með vönduðum hætti. Aukin lofthæð er í íbúðinni og innihurðir í yfirhæð sem gefur rúmgott yfirbragð. Gengið er inn í hol, snyrting til vinstri, upphengt wc, baðkar með sturtuaðstöðu, baðinnrétting með granít borðplötu, spegill með hita, veggir flísalagðir með hvítum flísum, gólf flísalagt með dökkum flísum, lofturn úr snyrtingu Svefnherbergin snúa í norður, með útgengi út á rúmgóðar svalir úr stærra herberginu, fataskápur er í báðum herbergjum. 

Stofa, borðstofa og eldhús er í samliggjandi rými sem snýr í suður út að Laugavegi. 

Eldhúsinnrétting er háglans sprautulökkuð, granít í borðplötum, vandaður vaskur og blöndunartæki ásamt vönduðu helluborði, háfi, ofni og ísskápi, “franskar” svalir eru úr stofu með útsýni yfir Laugaveginn, sér þvottahús og geymsla eru í kjallara ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu. Samtals eru 6 íbúðir í húsinu, aðeins tvær íbúðir á hverri hæð sem skapar ákveðin þægindi.

Vandað nýlegt parket er á íbúðinni, öryggiskerfi tengt vaktstöð, álkápa á ytra byrði glugga og svalahurða, gangahurðir inn í íbúðir eru sér hljóðdempandi til að tryggja hámarks hljóðvist. Framhlið hússins er klædd með læstri kopar klæðningu sem gefur byggingunni vandað yfirbragð, norðurhlið og efsta hæð klæddar með álklæðningu. Eigninni hefur verið vel viðhaldið frá upphafi.

Með íbúðinni fylgja öll húsgögn, ljós, rúm og annar búnaður sem til staðar er við skoðun, að undanskildum rúmfötum, handklæðum og persónlegum hlutum

Á íbúðinni er í gildi leigusamningur við tryggan leigutaka með 4. mánaða uppsagnar ákvæði.

Örugg fjárfesting í miðbæ Reykjavíkur sem gefur trygga útleigumöguleika eða búsetu með alla þjónustu og afþreyingu í gögnufæri.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af umboðsmanni fasteignarinnar. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.

 

 

Finndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.is
- Söluyfirlit
- Senda fyrirspurn
- Tilboðsgerð
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (8)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Naustavör 64
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 64
Naustavör 64
200 Kópavogur
100.1 m2
Fjölbýlishús
312
1198 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Eyravegur 34 - Íbúð 107
Eyravegur 34 - Íbúð 107
800 Selfoss
68.1 m2
Fjölbýlishús
312
718 þ.kr./m2
48.900.000 kr.
Skoða eignina Norðurvegur 7-11
Norðurvegur 7-11
630 Hrísey
71.9 m2
Fjölbýlishús
212
471 þ.kr./m2
33.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 64
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 64
Naustavör 64
200 Kópavogur
100.1 m2
Fjölbýlishús
212
1148 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin