Fasteignaleitin
Opið hús:16. mars kl 17:00-17:30
Skráð 20. feb. 2026

Ásvallagata 55

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
56.2 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
55.900.000 kr.
Fermetraverð
994.662 kr./m2
Fasteignamat
54.300.000 kr.
Brunabótamat
26.950.000 kr.
Mynd af Sigrún Gréta Helgadóttir
Sigrún Gréta Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2002505
Landnúmer
194214
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt/Ekki vitað.
Raflagnir
Öryggi í rafmagnstöflu í sameign hafa verið endurnýjuð. Annað ekki vitað.
Frárennslislagnir
Viðhald og endurnýjun sameiginlegra klóaklagna (jafn og þétt) og snjóbræðsla frá 2011.
Gluggar / Gler
Hluti útihurða og glugga í íbúðum endurnýjuð í gegnum árin frá 2000.
Þak
Þakjárn, pappi, rennur, einangrun og niðurfallsrör endurnýjuð 2000-2001, þak einnig málað 2010 og rennur og niðurföll síðast yfirfarin 2024.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei.
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sameiginlegur
Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 2ja herb. íbúð á 1. hæð að Ásvallagötu 55 í Reykjavík. Einungis fjórar íbúðir eru í stigaganginum (tvær á hvorri hæð). Frábær fyrstu kaup. Húsið er steinsteypt og mynda húsin hring utan um skemmtilegan skjólgóðan gróinn garð með leiktækjum, bekkjum, borðum og matjurtabeðum. Frábær staðsetning þar sem göngufæri er í sundlaug, háskólasvæðið, verslanir, kaffihús og leik- og grunnskóla. Einnig er afar stutt í útivistarsvæði við sjávarsíðuna og í miðbæinn þar sem allt er til alls.
Reykjavíkurborg sér um að halda garðinum í portinu við og er garðurinn öllum opinn á daginn, en á kvöldin er hliði í undirgöngum læst og garðurinn er þá eingöngu fyrir íbúa í húsinu. Húsalengjan er teiknuð af Guðjóni Samúelssyni arkitekt og eru sögufrægir verkamannabústaðir. Húsalengjan myndar hring utan um þennan garð og stendur við Ásvallagötu, Bræðraborgarstíg, Hringbraut og Hofsvallagötu.


Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is 

Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, herbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 56,2 m2.


**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!

*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA OG OPIÐ HÚS

Smelltu hér og þú færð söluyfirlitið strax
Nánari lýsing:
Forstofa
 er inn af sameiginlegum inngangi. Eingöngu þrjár tröppur eru upp á stigapall. Eldvarnarhurð er inn í íbúð. Innan íbúðar er komið inn á flísalagt hol með innskoti fyrir yfirhafnir.
Herbergi I er á hægri hönd þegar komið er inn í íbúð. Rúmgott herbergi með fjórföldum viðarskáp sem nær upp í loft og parketi á gólfi. Herbergi snýr út í afgirtan garð til suðvesturs.
Stofa er björt með gluggum út í garð. Parket á gólfi. 
Eldhús er með hvítri og grárri "U" laga innréttingu. Milli efri og neðri skápa er blikk. Ofn, helluborð og vifta fyrir ofan. Borð til að sitja við tekur við af öðrum enda innréttingar. Gluggi snýr út að götu. Á gólfi eru flísar.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með ljósum flísum. Hvít innrétting undir handlaug og drapplitaðri borðplötu. Speglaskápur með ljósi, veggfestur ílangur hvítur skápur, upphengt salerni, hvítur handklæðaofn og sturtuklefi. Opnanlegt fag í glugga.
Geymsla er sér, staðsett í kjallara. Hún er 12,1 m2 og með glugga. Stórt rými með glugga og skápum.
Þvottahús er einstaklega rúmgott, staðsett í sameign í kjallara. Hver með sínar vélar.
Bílastæði eru gjaldfjárs í götunni.
Garður er sameiginlegur og mynda samliggjandi hús garð sem er öllum opinn á daginn, en á kvöldin er hliði í undirgöngum læst og garðurinn er þá eingöngu fyrir íbúa í húsinu. Allar eignirnar eru með útgengi út í garðinn úr sameign í kjallara. Almenningssvæði er í miðju garðs og sér Reykjavíkurborg um viðhald þess svæðis. Þar eru leiktæki o.fl.

Samantekt á framkvæmdum í gegnum árin frá húsfélaginu:
1994-1995 Var unnið við múrviðgerðir á húsunum.
2000-2001 Var heildarendurnýjun á þaki. Skipt var um járn á þaki og það málað, skipt um pappa, rennur og niðurfallsrör og
einangrað með steinull.
2000-2001 Endurnýjun loftneta og loftnetslagna, jarðbinding.
2001-2002 Endurnýjun hluta kjallarahurða og glugga.
2003 Endurnýjun glugga í íbúðum og sameignum.
2004-2005 Endurnýjun og viðhald glugga í íbúðum og sameignum.
2006 Málun glugga og hurða, viðhald og endurnýjun glugga.
2007 Viðhald og endurnýjun steyptra kjallaraglugga.
2008 Viðhald glugga og útidyrahurða.
2009 Viðhald glugga og útidyrahurða.
2010 Málun þaka, niðurfallsröra og þakrenna.
2011 Málun botnstykkja eða heilmálun glugga eftir atvikum og kjallarahurða, lagning snjóbræðslu.
Viðhald og endurnýjun hluta sameiginlegrar klóakslagnar.
2011 Hannaðar betrumbætur með tilliti til eldvarna og hljóðeinangrunar á upprunalegu hurðirnar sem skilja að íbúðir og
stigaganga.
2012 Endurgerð fyrrum búðarglugga á Bræðraborgarstíg og upprunalegra útidyrahurða.
2012 Endurreisn garðveggja við Hringbraut.
2013 Hönnun garðhliða.
2014 Uppsetning húsnúmera og götuskilta, uppsetning útiljósa, unnið að úttekt á húsunum.
2015 Vinnu við úttekt húsanna haldið áfram, smíði og uppsetning garðhliða, viðhald glugga.
2016 Áframhaldandi viðhald glugga og hurða, viðhald og endurnýjun á þakrennum og niðurfallsrörum.
2017-2019 Áframhaldandi viðhald og málun glugga og hurða, viðhald og endurnýjun á þakrennum og niðurfallsrörum.
2019-2020 Áframhaldandi viðhald og málun glugga og hurða, viðhald og endurnýjun á þakrennum og niðurfallsrörum. Viðhald á
styttunni af Héðni Valdimarssyni. Endurnýjun trjágróðurs.
2021 Myndun klóakslagna, viðhald glugga, viðhald, endurnýjun og málun á þakrennum og niðurfallsrörum, loftnet fjarlægð
af skorsteinum. Slegið upp fyrir nýjum stöpli undir styttuna af Héðni Valdimarssyni.
2022 Viðhald glugga, viðhald á þakrennum, haldið áfram plöntun og endurnýjun á trjám í garða.
2023 Málun á þökum, viðhald og blettun á niðurfallsrörum og þakrennum, viðgerðir á kjallaratröppum, stöpull undir
styttuna af Héðni Valdimarssyni flísalagður og styttunni komið fyrir.
2024-2025 Myndun klóakslagna, viðhald og blettun glugga, viðhald, endurnýjun og málun á þakrennum og niðurfallsrörum,
lítilsháttar múrviðgerðir. Haldið áfram plöntun á trjám í garða.

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/12/202236.100.000 kr.44.000.000 kr.56.2 m2782.918 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (31)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Stekkjarberg 11
Skoða eignina Stekkjarberg 11
Stekkjarberg 11
221 Hafnarfjörður
93.7 m2
Fjölbýlishús
312
1051 þ.kr./m2
98.500.000 kr.
Skoða eignina Lautarmói 1 íbúð 101
Bílastæði
Lautarmói 1 íbúð 101
603 Akureyri
112.7 m2
Fjölbýlishús
312
869 þ.kr./m2
97.900.000 kr.
Skoða eignina Reykjastræti 2
Til leigu
Skoða eignina Reykjastræti 2
Reykjastræti 2
101 Reykjavík
408 m2
Atvinnuhúsn.
Tilboð
Skoða eignina Lautargata 5 íb. 101
Lautargata 5 íb. 101
210 Garðabær
88 m2
Fjölbýlishús
312
953 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin