Fasteignaleitin
Opið hús:06. okt. kl 17:00-17:30
Skráð 1. okt. 2026

Grundartangi 20

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
136.5 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
119.900.000 kr.
Fermetraverð
878.388 kr./m2
Fasteignamat
97.100.000 kr.
Brunabótamat
77.800.000 kr.
Mynd af Þyrí Guðjónsdóttir
Þyrí Guðjónsdóttir
Viðskiptafræðingur - löggiltur fasteignasali
valborgfs.isEignalisti
Byggt 1981
Garður
Pallur
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2083555
Landnúmer
124589
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Nýlegir að hluta
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Sameiginlegur
Inngangur
Sérinngangur
Kvöð / kvaðir
Kvöð um 1,8 bílastæði á lóð.
NÝTT Á SÖLUSKRÁ:
Valborg fasteignasala kynnir í einkasölu, fallegt og mikið endurnýjað 136,5 m² miðjuraðhús að Grundartanga 20, 270 Mosfellsbær, nánar tiltekið eign merkt 01-0101, fastanúmer 208-3555 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Fallegt fjölskylduhús á tveimur hæðum með nýlegum sólpalli með köldum potti og saunahúsi.
Rúmgóður 13 m² geymsluskúr á hellulagðri verönd fyrir framan hús.

Nánari lýsing á eigninni:
Neðri hæð

Forstofa: Fatahengi. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi I (hjónaherbergi): Rúmgott og bjart herbergi með fataskápum. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi II: Gott barnaherbergi með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi:  Nútímaleg lítil innrétting með borðplötu frá S. Helgasyni, vegghengt salerni, handklæðaofn og sturta. Flísar á gólfi.
Þvottaherbergi: Hagnýt innrétting sem rúmar þvottavél og þurrkara. Góðar hillur og lakkað gólf.
Eldhús: Nýleg innrétting með dökkum skápum og borðplötu frá S.Helgasyni. Bakaraofn í vinnuhæð, spanhellur og gufugleypir. Harðparket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Bjart og opið samliggjandi rými við eldhúsið. Stórir gluggar sem hleypa mikilli birtu inn. Aukin lofthæð. Harðparket á gólfi. Útgengt er út á skjólsæla timburverönd til suðvesturs með köldum potti og saunahúsi.
Efri hæð
Svefnherbergi III: Gott barnaherbergi með þakglugga. Harðparket á gólfi
Svefnherbergi IV: Rúmgott barnaherbergi með þakglugga. Harðparket á gólfi.
Sjónvarpsstofa/skrifstofa: Rúmgott opið rými með þakglugga sem hægt er að nota sem sjónvarpsstofu eða skrifstofu. Harðparket á gólfi. 
Geymsla innan rýmis með góðu geymsluplássi undir súð.

Skjólgóður sólpallur í suðvestur með köldum potti og saunahúsi. Góð hirslueining með góðu geymsluplássi og pizzaofni.
Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl er við bílastæðið.

Framkvæmdir og viðhald eignarinnar samkvæmt seljanda:
2006 - 2007:  Viðbygging reist og annarri hæð bætt ofan á eldri íbúðareininguna.
2007:   Nýtt rafmagn og nýir gluggar í stofu.
2007 - 2022:   Vatnslagnir endurnýjaðar.
2007:   Nýir ofnar nema í forstofu, hjónaherbergi og barnaherbergi á fyrstu hæð.
2020:   Nýir gluggar í herbergjum.
2022:   Ný eldhúsinnrétting og nýtt harðparket.
2022:   Nýr sólpallur og skjólveggir.
2022:   Geymsluskúr 13 m².
2026:   Ný rafmagnstafla.

Fjölskylduhús á eftirsóttum stað í rólegu og grónu íbúðarhverfi miðsvæðis í Mosfellsbæ. Grunn- og leikskólar í næsta nágrenni. Öll helsta þjónusta og verslanir eru í göngufæri. Frábærar göngu- og hjólaleiðir allt í kring.

Eignin Grundartangi 20 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 208-3555, birt stærð 136.5 m².
Neðri hæð er skráð 108,5 m² og efri hæð er skráð 28 m². 

Nánari upplýsingar veitir:
Þyrí Guðjónsdóttir, viðskiptafræðingur - löggiltur fasteignasali, í síma 891 9867, tölvupóstur thyri@valborgfs.is.


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.  Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (44)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Jöfursbás 5A - íb 306
Bílastæði
Opið hús:03. okt. kl 11:30-12:00
Jöfursbás 5A - íb 306
112 Reykjavík
118.7 m2
Fjölbýlishús
322
993 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 5d íbúð 403
Bílastæði
Opið hús:03. okt. kl 11:30-12:00
Jöfursbás 5d íbúð 403
112 Reykjavík
115.2 m2
Fjölbýlishús
312
997 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 3B íb 503
Bílastæði
Opið hús:03. okt. kl 11:30-12:00
Jöfursbás 3B íb 503
112 Reykjavík
126.4 m2
Fjölbýlishús
413
909 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Urriðaholtsstræti Þakíbúð 15 502
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:04. okt. kl 15:00-15:30
Urriðaholtsstræti Þakíbúð 15 502
210 Garðabær
158.3 m2
Fjölbýlishús
423
1251 þ.kr./m2
198.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin