Fasteignaleitin
Skráð 16. sept. 2026

Ægisgata 20

FjölbýlishúsNorðurland/Ólafsfjörður-625
156.7 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
42.900.000 kr.
Fermetraverð
273.772 kr./m2
Brunabótamat
81.450.000 kr.
Byggt 1973
Svalir
Pallur
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
215442911
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Ægisgata 20 Ólafsfirði - Mjög mikið endurnýjuð 5 herbergja raðhúsaíbúð á tveimur hæðum og með innbyggðum bílskúr - stærð 156,7 m²


Eignin skiptist með eftirtöldum hætti, 
Neðri hæð:
Forstofa, gangur, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. 
Efri hæð: Gangur, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofa. 

Forstofa er með flísum á gólfi og nýlegri útidyrahurð. Úr forstofu er gengið inn á gang með ljósu harð parketi á gólfi og við endann á ganginum er hurð út til suðurs á timbur verönd. 
Eldhús, nýleg hvít sprautulökkuð innrétting með góðu skápa- og bekkjarplássi. Ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð í innréttingu og fylgja með við sölu eignar. 
Stofa og eldhús eru í opnu björtu rými með ljósu vínyl parketi á gólfi. Skápar undir sjónvarpi fylgir með við sölu eignar. 
Stigi milli hæða er steyptir og með ljósu teppi. Undir stigapallinum er smá geymsluhorn. 
Baðherbergin eru tvö, eitt á hvorri hæð og bæði nýlega endurnýjuð. Á neðri hæð eru flísar á gólfi og veggjum að hluta, ljós innrétting, upphengt wc og sturta með innfelldum tækjum og handklæðaofn. Á efri hæðinni eru flísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting og speglaskápur, upphengt wc, baðkar, ofn innfellur í vegginn og opnanlegur gluggi. Innfelld lýsing er í lofti. 
Svefnherbergin eru fjögur, tvö á neðri hæðinni með harðparketi á gólfi og tvö á efri hæðinni með vínyl parketi. Í hjónaherberginu er stór hvítur fataskápur og hurð út til suðurs á steyptar svalir. Á ganginum milli herbergja á efri hæðinni er stór fataskápur með rennihurðum. 
Þvottahús er með flísum á gólfi, innréttingu með vask og opnanlegum glugga. Möguleiki er að setja upp handklæðaofn. Gengið er í gegnum þvottahúsið þegar farið er inn í bílskúr. 
Bílskúr er skráður 20,7 m² að stærð. Gólf er steypt og innkeyrsluhurð er með rafdrifnum opnara. Búið er að leggja raflögn fyrir bílhleðslustöð í bílskúrnum. Bílaplan var endurnýjað árið 2022, steypt og settar hitalagnir, lokað kerfi.  

Annað
- Búið er að endurnýja glugga, útidyrahurð og svalahurðar.
- Gólfhiti er í allri íbúðinni að bílskúr undanskildum.  
- Allar innihurðar hafa verið endurnýjaðar.
- Búið er að endurnýja rafmagnstengla og draga nýja raflagnir í hluta.
- Allar vatnslagnir eru endurnýjaðar - hitaveitugrind og frárennslislagnir út götu. 
- Timburverönd er á baklóðinni.
- Húsið var málað að utan árið 2025.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasalan Hvammur
www.kaupa.is

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Arkarvogur 4
Bílastæði
Hleðslustöð
Skoða eignina Arkarvogur 4
Arkarvogur 4
104 Reykjavík
163.1 m2
Fjölbýlishús
523
766 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Skoða eignina Strandgata 26
Skoða eignina Strandgata 26
Strandgata 26
220 Hafnarfjörður
162.9 m2
Fjölbýlishús
423
1166 þ.kr./m2
189.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 16
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 16
Naustavör 16
200 Kópavogur
150 m2
Fjölbýlishús
523
1053 þ.kr./m2
158.000.000 kr.
Skoða eignina Steinás 17
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Steinás 17
Steinás 17
260 Reykjanesbær
167.7 m2
Raðhús
413
554 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin