Fasteignaleitin
Opið hús:03. maí kl 14:00-14:30
Skráð 30. apríl 2026

Barmahlíð 12

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
106.8 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
93.900.000 kr.
Fermetraverð
879.213 kr./m2
Fasteignamat
86.350.000 kr.
Brunabótamat
54.050.000 kr.
ÞS
Þórir Skarphéðinsson
löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2030062
Landnúmer
107022
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Endurnýjað að hluta
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
1
Inngangur
Sérinngangur
Betri Stofan Fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lögg. fasteignasali kynna: 

Mikið endurnýjuð og vel skipulögð 106,8 fm, fjögurra herbergja íbúð með sérinngangi og útgengi á suðursvalir úr stofu í eftirsóttu hverfi við Barmahlíð 12 í Reykjavík. Húsið hefur verið mikið endurnýjað að innan og utan á undanförnum árum. Þannig hafa gluggar verið endurnýjaðir, hús múrviðgert og málað, eldhús og bað endurnýjað auk þess sem gólfefni hafa verið endurnýjuð.  Að auki hafa í gegnum árin ofnalagnir, ofnar, dren, lagnir undir húsi, rafmagn, þakjárn ofl. verið endurnýjað.
Heildarstærð íbúðar er 106.8 fm. Þar af er íbúðin skráð 104,3 fm., anddyri 2.5 fm. og sérgeymsla í þakrými ekki inn í birtri stærð.
Svalir eru til suðurs og ca. 13 fm. geymsluskúr á lóð sem fylgir þessari íbúð. Um er að ræða hús sem er hannað af Sigvalda Thordarson.

Nánari lýsing eignar:

Gengið eru um sérinngang og upp teppalagðan stiga að íbúðinni. Anddyri með fatahengi. Rúmgott hol/gangur með tveimur skápum, parket á gólfi. Á vinstri hönd er nýleg eldhúsinnrétting, rúmgóður borðkrókur og parket á gólfi. Við hliðina á eldhúsi er samliggjandi stofa og borðstofa með parketi á gólfi og stórum gluggum. Útgengi út á sólríkar svalir. Tvö svefnherbergi með fataskápum, parket á gólfi. Endurnýjað baðherbergi með fallegum flísum, veggföstu salerni, hvítri innréttingu og baðkari með sturtu. Einnig er pláss fyrir þvottavél á baðherberginu. Þakgeymsla er yfir íbúðinni sem er í séreign þessarar íbúðar. Auðvelt væri að bæta við aukaherbergi í íbúð. Í kjallara er snyrtilegt, sameiginlegt þvottaherbergi þar sem hver íbúð hefur sína þvottavél.

Umtalsverðar endurbætur hafa verið gerðar á eigninni á undanförnum árum en að sögn seljanda var:
Hús múrviðgert og málað 2025
Allir gluggar í íbúð og sameign endurnýjaðir 2025
Frárennslislögn frá eldhúsi 2024
Eldhús endurnýjað 2020 (Innrétting og raflagnir)
Gólfefni endurnýjað 2020 (Parket á stofu, eldhúsi, gangi og herbergjum)
Skápar endurnýjaðir 2020 (Sérsmíðaðir skápar í herbergjum og gangi)
Skv. Upplýsingum frá fyrri eiganda hefur þakjárn verið endurnýjað ásamt dreni og lögnum undir húsi. Einnig hafa ofnalagnir, ofnar og rafmagn verið endurnýjaðir. Baðherbergi var einnig endurnýjað af fyrri eiganda.
Í kjallara er snyrtilegt, sameiginlegt þvottaherbergi þar sem hver íbúð hefur sína þvottavél ásamt sérgeymslum.

Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og  löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
01/10/201949.200.000 kr.54.000.000 kr.106.8 m2505.617 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (50)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hafnarstræti 100 íbúð 204
Opið hús:04. maí kl 16:15-16:45
Hafnarstræti 100 íbúð 204
600 Akureyri
53.2 m2
Fjölbýlishús
211
750 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Skoða eignina Sjónarvegur 3
Opið hús:06. maí kl 16:30-17:00
Skoða eignina Sjónarvegur 3
Sjónarvegur 3
210 Garðabær
107.2 m2
Fjölbýlishús
312
904 þ.kr./m2
96.900.000 kr.
Skoða eignina Dugguvogur 13
Opið hús:05. maí kl 18:00-18:30
Skoða eignina Dugguvogur 13
Dugguvogur 13
104 Reykjavík
93.6 m2
Fjölbýlishús
312
838 þ.kr./m2
78.400.000 kr.
Skoða eignina Strandvegur 15
Bílastæði
Opið hús:05. maí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Strandvegur 15
Strandvegur 15
210 Garðabær
119 m2
Fjölbýlishús
413
898 þ.kr./m2
106.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin