Guðmundur Þór Júlíusson og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu: Björt og vel skipulögð 112,5 fm. fjögurra herbergja íbúð á fyrstu hæð með sér þvottahús, skjólsæla verönd með skjólveggjum og sér bílastæði í lokaðri bílageymslu með hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla.
Vel staðsett og flott íbúð með þremur svefnherbergjum í hinu vinsæla Sjálandshverfi, Strandvegur 6, 210 Garðabæ.
Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.isNánari lýsing: Forstofuhol / gangur er með innbyggðum fataskápum og parket á gólfi.
Hjónaherbergið er rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Opið, bjart og rúmgott alrými sem telur stofu, borðstofu og eldhús með borðkrók.
Innrétting í eldhúsi er á tveimur veggjum með gott vinnu, skúffu og skápapláss. Bökunarofn er í vinnuhæð, innbyggður ísskápur með frystir og innbyggð uppþvottavél. Parket á gólfi.
Stofan og borðstofan fær mikla birtu inn frá gólfsíðum gluggum inn í eldhúsi og gólfsíðum gluggum frá borðstofunni. Útgengi er út frá borðstofu út á skjólasæla suður-verönd með skjólveggjum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og á veggjum. Upphengt salerni, baðkar með sturtu aðstöðu og hvít innrétting með handlaug og gott skúffupláss, hringlaga spegill þar fyrir ofan með lýsingu í og handklæðaskáp þar við hlið.
Sér þvottahús er með flísum á gólfi ásamt tengi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara til að hafa í vinnuhæð og skolvask þar við hlið.
Barnaherbergin eru tvö, bæði rúmgóð með parket á gólfi og fataskápum.
Sérmerkt stæði er í bílageymslu. Sér geymsla íbúðar (7,5 fm.) er fyrir aftan stæðið í bílageymslunni. Auk þess er svo sameiginleg hjóla/vagna og sér dekkjageymsla.
Lóð hússins er vel hirt. Stór bakgarður með leiktækjum sem hægt er að ganga út frá af verönd íbúðarinnar.
Framkvæmdir síðastliðin ár:
Eldhús gert upp árið 2020
Parket pússað og nýir listar lagðir árið 2020
Ný innrétting sett á baðherbergi árið 2025
Veröndinni hefur verið vel viðhaldið.
Sameign: Nýtt teppi lagt á stigagang 2025
Eignin er staðsett í Sjálandshverfinu og er stutt í alla nauðsynlega þjónustu. Ylströndin, hjóla- og göngustígar og falleg náttúra einkenna svæðið. Góður sameiginlegur garður með gróðri og leiktækjum sunnan við húsið.
Húsið er vandað og ber með sér gott viðhald. Byggt árið 2004 af Gunnar og Gylfa.
Fyrirhugað fasteignamat næsta árs, 2026 er 90.600.000 kr.Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma
858-7410 eða gj@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-