Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Hjallalundur 17 íbúð 301 - Mikið uppgerð og virkilega falleg 3ja herbergja íbúð á 3ju hæð í fjölbýli á Brekkunni - Stærð 76,7 m²Eignin skiptist í forstofu/gang, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Á jarðhæðinni er sér geymsla.
Forstofa og gangur eru með opnu hengi og nýlegu harð parketi á gólfi.
Eldhús falleg innrétting, dökkir neðri skápar, grá bekkplata og hvítir efri skápar. Ísskápur er innfelldur í innréttingu og fylgir með við sölu eignar. Úr eldhúsi er gengið inn í þvottahús.
Stofa er ágætlega rúmgóð, með nýlegi harð parketi á gólfi og hurð út á steyptar vestur svalir.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með nýlegu harð parketi á gólfi og hvítum nýjum fataskápum.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað, flísar á gólfi og hluta veggja, hvít innrétting og speglaskápur, upphengt wc og sturta.
Þvottahús er inn af eldhúsinu með harð parketi á gólfi, bekk með stálvask og efri skáp og opnanlegum glugga.
Sér geymsla er á jarðhæðinni.
Annað- Innréttingar, fataskápar, gólfefni, innihurðar, rafmagnstenglar o.fl var endurnýjað árið 2024
- Snyrtileg sameign
- Sumarið 2023 var sett nýtt efni á svalagólfið.
- Stutt í leik- og grunnskóla og íþróttarsvæði KA
- Stutt í verslun og ýmsa þjónustu
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.