Fasteignaleitin
Skráð 4. okt. 2024

Valshlíð 3

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
77.7 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
86.900.000 kr.
Fermetraverð
1.118.404 kr./m2
IF
Irpa Fönn Hlynsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Fasteignanúmer
2532690
Landnúmer
223517
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Byggingarstig
B1 - Byggingarleyfi

Hlíðarhorn.is kynnir Valshlíð 3 - Íbúð 409.

Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin afhendist fullbúin við kaupsamning. Íbúðinni fylgir sémerkt bílastæði í sérreknum bílakjallara (langtímaleiga).

Á sölusíðu eignarinnar í eCASA færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.

S8-Sameign: Verð íbúðar miðað við 25% sameign er 65.175.000. S8 ehf. sem byggingaraðili heldur eftir 25% af íbúðinni í 10 ár skv sameignarsamningi sem er undirritaður samtímis og kaupsamningur. Helstu spurningar og svör hvað varðar sameignarleiðina má finna hér.

S8-leiga: Íbúðin er einnig í boði til leigu að lágmarki í 1 ár. Leiguverð íbúðar fylgir markaðsverði á hverjum tíma að viðbættu hússjóðsgjaldi.

Ef þú vilt fræðast meira um eignina og þær lausnir sem eru í boði, sendu fyrirspurn á s8@s8.is eða hlidarhorn@s8.is. Þú getur líka hringt í síma 4152500 og fengið allar upplýsingar frá starfsmönnum S8 ehf, bókað skoðun í Hlíðarhorni og mátað íbúðina.

Stórglæsileg og rúmgóð 2ja herbergja horníbúð á 4. hæð í Hlíðarhorni. Birt stærð er 77,7 fm þar af 6,3 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús með eyju og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, gæðaraftækjum frá Siemens, hágæða ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mói 1.

Nánari lýsing: Í anddyri eru góðir fataskápar. Gengið er úr anddyri beint inn í rúmgott alrými, eldhús með eyju, stofu/borðstofu með útgengi á rúmgóðar suðursvalir. Taupe grá eldhúsinnrétting, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og vönduð ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Innbyggður ísskápur. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, taupe grá innrétting og speglaskápur með lýsingu. Blöndunartæki á baði úr byssubláu stáli. Afþiljuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0025. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar hafa forgang.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Bílakjallari undir Hlíðarhorni er ekki hluti af sameign og er skv. deiliskipulagi “samnýttur”. Kjallarinn verður rekinn óhagnaðardrifinn af rekstrarfélagi sem er í eigu S8 ehf. en úthlutað er föstum langtíma leigusamningum til ákveðinna íbúða. Kaupendur geta einnig valið að gerast aðilar að rekstrarfélagi bílakjallara samfara kaupum á íbúð og geta þannig haft áhrif á rekstur kjallarans til framtíðar.

Á heimasíðu Hlíðarhorns, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni, á þessum frábæra stað í miðbænum.

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu byggingaraðila og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir úr auglýstri íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingarþema.

ATH: Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (14)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vatnsholtsvegur 7
Vatnsholtsvegur 7
806 Selfoss
90 m2
Sumarhús
413
832 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Skuggagil 10
Skoða eignina Skuggagil 10
Skuggagil 10
603 Akureyri
83.2 m2
Fjölbýlishús
412
720 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Hesthamrar 5
Opið hús:11. júní kl 17:45-18:15
Skoða eignina Hesthamrar 5
Hesthamrar 5
112 Reykjavík
198 m2
Fjölbýlishús
813
606 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Esjubraut 41
Bílskúr
Skoða eignina Esjubraut 41
Esjubraut 41
300 Akranes
147.5 m2
Einbýlishús
413
555 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin