Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Hafnartún 28 - Mikið endurnýjuð og vel skipulögð 5 herbergja parhúsaíbúð á tveimur hæðum á Siglufirði - stærð 123,7 m²
Eignin skiptist með eftirtöldum hætti,
Neðri hæð: Forstofa, snyrting, gangur, þrjú svefnherbergi, geymsla og þvottahús.
Efri hæð: Eldhús, stofa, hol, svefnherbergi og baðherbergi.
Forstofa er með flísum á gólfi, gólfhita, "handklæða"ofni og þreföldum fataskáp.
Hol á neðri hæð er með nýlegu hvíttuðu harð parketi á gólfi og þaðan liggur teppalagður timburstigi upp á efri hæðina.
Svefnherbergin eru fjögur, þrjú á neðri hæðinni, öll með nýlegu hvíttuðu harð parketi á gólfi, tvöföldum fataskápum og nýlegum hvítum innihurðum. Svefnherbergi á efri hæðinni er með eins harð parketi og viðarlitaðri rennihurð. Fyrir framan er hol með sérsmíðuðum fataskápum og lúga upp á loft.
Eldhús, hvíttuð viðar innrétting (2013) með flísum á milli skápa og hvíttað harð parket á gólfi. Stæði er í innréttingu fyrir uppþvottavél og ísskáp. Fyrir framan eldhúsið er góður borðkrókur og úr honum er útgengt á timbur verönd.
Stofa er með hvíttuðu harð parketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og þiljum á veggjum, dökkri innréttingu og speglaskáp, upphengdu wc, handklæðaofni, walk-in sturtu með innfelldum tækjum og hurð út á yfirbyggðar svalir. Hiti er í gólfi.
Snyrting er á neðri hæðinni, þar eru flísar á gólfi og þiljur á veggjum, dökk innrétting og upphengt wc. Gólfhiti og handklæðaofn.
Geymsla er með dúk á gólfi. Gengið er í gegnum geymsluna þegar farið er inn í þvottahús.
Þvottahús nýtist sem annar inngangur fyrir íbúðina. Þar er dúkur á gólfi, skolvaskur og hvítir skápar.
Annað
- Köld geymsla er við bakdyrainngang
- Hvítar innihurðar og harð parket er frá Birgison.
- Eignin var mjög mikið endurnýjuð á árunum 2020 - 2021. Nýtt harð parket, nýjar innihurðar, sérsmíðaðir fataskápar frá Brúnás o.fl.
- Í framkvæmdunum 2020-2021 voru baðherbergi og snyrting endurnýjað og lagðar nýjar neysluvatnslagnir í eldhús, baðherbergi og á snyrtingu.
- Gólfhiti er í forstofu, á snyrtingu og á baðherbergi og er honum stýrt í gegnum ofna.
- Gler var endurnýjað árið 2022.
- Sér hitaveita og sér rafmagn.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.