Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynna stórglæsilega þakíbúð (penthouse) við Laugaveg 103 með stórfenglegu útsýni og 30 fermetra þaksvölum, algjöra perlu í miðbæ Reykjavíkur. Eignin var öll endurnýjuð á árinu 2022 og 2023. Eigninni fylgir tvöfaldur bílskúr í bílakjallara. Lyftan opnast beint inn í íbúðina. Hér er á ferðinni einstök eign fyrir vandláta þar sem engu hefur verið til sparað í efnisvali og hönnun. Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is. Eignin er einungis sýnd í einkaskoðun með bókun hjá Hallgrími. Sýning getur verið samdægurs. Íbúðin er laus og afhendist við kaupsamning.
Íbúðin skiptist í anddyri, hol, geymslu, 2 baðherbergi, eldhús, stofur, sjónvarpsherbergi (sem áður var svefnherbergi), svefnherbergi með útgengi út á þaksvalir og aðalsvefnherbergi með fataherbergi og sér baðherbergi. Tæknigeymsla er á hæðinni.
Samtals 215 fm þakíbúð með 30 fm þaksvölum.
Íbúðin sjálf er skráð 158 fm á efstu hæð auk 36 fm bílskúrs og geymslum í kjallara.
Lyfta beint inní íbúð, eina íbúðin á hæðinni. Geymsla á stigagangi.
Fallegt parket er í stofu, svefnherbergjum og í eldhúsi, lagt í fiskibeinamynstri.
Eldhús með nýjum tækjum, Liebherr ísskáp, Miele tæki og gaseldavél. Afar falleg og vönduð innrétting í dökkum viði.
Tvö baðherbergi, flísar á baðherbergjum, gólfhiti er í íbúðinni. Stofa með útsýni. Stofan er með fallegri kamínu.
Glæsilegt útsýni til suðurs og norðurs. 2-3 svefnherbergi. 2 baðherbergi, og annað þeirra er með þvottavélaaðstöðu.
Rafdrifnar gardínur eru í íbúðinni. Rennihurð frá stofu og svefnherbergi út á þaksvalir til suðurs.
Í kjallara eru lokaður bílakjallara, og inní honum er tvöfaldur 36,3 fermetra bílskúr sem fylgir íbúðinni, sem og tvær geymslur sem eru að stærðinni 8,5 fm og 9,5 fm, á geymslugangi.
Innanhús arkitekt: Ingunn Helga Hafstað / ARKTIKA. Ekkert var til sparað við hönnun og endurnýjun íbúðarinnar.
Nokkur atriði um nýlegar breytingar:
Eirvík, nýtt eldhús innréttingar og tæki , Miele ofnar , Liebherr tvöfaldur sambyggður ískápur, Franke vaskur, upphengd blöndunartæki.
Ísleifur Jónsson baðherbergi , nýjar innéttingar og speglar Duravit, blöndunartæki frá, Hansgrohe Axor.
GKS Innihurðir sérsmíðaðar, húnar Arne Jacobsen, smellulæsingar.
Birgisson , flísar á baðherb. Gegnheilt niðurlímt parket lagt í fiskibeinamynstri.
Gólfhiti
Lýsing frá Lumex
Öryggiskerfi frá Securitas.
Kamína / arinn sem virkar frábærlega, bæði hægt að hafa opinn eða lokaðan, sérinnfluttur.
Hljóðlausar segul læsingar á öllum inni hurðum
Hægt að ganga úr öllum rýmum út á svalir sem snúa í suður, 4 rýmum.
Mjög góð hljóðvist, heyrist ekkert inn í íbúð frá Laugaveginum
Myndavéladyrasími
Baklýsing bak við allar gardínur í öllum rýmum
Allar gardínur rafstýrðar með fjarstýringu í öllum rýmum.
Staðsetning eignarinnar er frábær í hluta miðbæjarins sem hefur verið í mikilli endurnýjun. Frábært framtíðar hverfi í mikilli endurnýjun rétt við Hlemm svæðið þar sem Hlemmur mathöll er í nokkurra mínútna fjarlægð og stutt er á Kjarvalsstaði, Klambratún og Sundhöll Reykjavíkur. Laugavegurinn og miðbærinn í göngufæri með öllum sínum verslunum, veitingastöðum og þjónustu. Hér er einstök eign á ferðinni fyrir vandláta, á frábærum stað í hjarta borgarinnar. Bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is